The Christus statueThe Church of Jesus Christ of Latter-day Saints Search | Feedback | Site Map | Help | Country Sites |
Home Gospel Library Worldwide Leadership Training Meeting: Supporting the Family Sister Bonnie D. Parkin

Á foreldrum hvílir helg ábyrgð

Bonnie D. Parkin
Aðalforseti Líknarfélagsins

Bonnie D. ParkinFjölskylduábyrgð

E f ég ætti þess kost að velja eitthvað eitt til handa foreldrum og leiðtogum þessarar kirkju, yrði það að þeir gætu dag hvern fundið kærleika Drottins, er þeir annast börn himnesks föður. Ekki er víst að orð mín snerti ykkur, heldur það sem andinn hvíslar í hjarta ykkar. Fylgið þeim ljúfa innblæstri.

Ég man greinilega eftir því þegar yfirlýsingin um fjölskylduna var veitt: Hinn 23. september 1995. Ég var í Laufskálanum á aðalfundi Líknarfélagsins. Hinckley forseti var lokaræðumaður. Hann kynnti „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins.“ Söfnuðinn setti hljóðan og greina mátti eftirvæntingu; viðbrögð sem lýsa má með orðunum: „Já, við þurfum á hjálp að halda með fjölskyldur okkar!“

Ég minnist þess að hafa fundist hún hljóma svo rétt. Tár runnu niður vanga mína. Mér var litið á systur er sátu nærri mér og þær virtust upplifa álíka tilfinningar. Yfirlýsingin var svo efnismikil að ég gat vart beðið þess að fá eintak af henni til að kynna mér hana enn frekar. Yfirlýsingin staðfestir sæmd kvenna. Og vel á minnst, þá var hún fyrst veitt konum í kirkjunni á aðalfundi Líknarfélagsins – og því veit ég að Hinckley forseti metur kvenþjóðina mikils.

Við erum öll hér sem leiðtogar. Við erum önnum kafin. En ég verð að hafa í huga – líkt og þið – að mikilvægasta ábyrgðin er okkar eigin fjölskylda. Hafið í huga að hún er ein fárra blessana sem við fáum að taka með okkur í eilífðunum!1 Newel K. Whitney var biskup í Kirtland á fyrstu tíð kirkjunnar. Hann hlýtur að hafa verið nokkuð önnum kafinn við að koma miklu góðu til leiðar, líkt og þið biskuparnir sem nú á hlustið. En hann var agaður af Drottni og honum boðið að „koma reglu á fjölskyldu sína“ (K&S 93:50; leturbreyting hér). Bræður og systur, leiðsögn þessi á við um okkur öll.

Mörg ykkar eru foreldrar eða afar eða ömmur, eða munuð einhvern tíma verða það. En hvort sem við erum gift eða ekki þá eigum við öll fjölskyldu. Staldrið örlítið við og hugsið um fjölskyldu ykkar. Hvað finnst ykkur yndislegt við hana? Eitt af því sem mér finnst yndislegt við mína fjölskyldu er að synir mínir fjórir hafa gaman af að vera í félagsskap hvers annars.

Hvaða kennslu um fjölskylduna er að finna í yfirlýsingunni? Ég ætla að taka fyrir eina málsgrein: „Samkvæmt guðlegri áætlun eiga feður að sitja í forsæti fjölskyldu sinnar í kærleika og réttlæti og bera þá ábyrgð að sjá henni fyrir nauðsynjum lífsins og vernda hana. Meginábyrgð mæðra er að annast börnin. Við þessa helgu ábyrgð ber feðrum og mæðrum skylda til að hjálpa hvort öðru sem jafningjar.“2

Ég ann orðunum: „Samkvæmt guðlegri áætlun.“ Foreldrahlutverið er hluti af hinni guðlegu áætlun himnesks föður fyrir börn hans. Sem foreldrar höfum við þá guðlegu ábyrgð að sjá fyrir börnum okkar, vernda þau og veita þeim uppeldi.

Hvernig geta reglurnar – að sjá fyrir, vernda og ala upp – gert okkur kleift að koma upp réttlátum börnum?

Sjá fyrir

Yfirlýsingin segir að foreldrum beri að sjá fyrir „nauðsynjum lífsins.“ En hverjar eru þessar nauðsynjar lífsins? Já, þær eru þak yfir höfuðið og matur á borðið. En við vitum að fleira býr þar undir vegna fagnaðarerindisins. Þær eru einnig hæfni – allt það sem eflir persónuleikann. Við skulum velta fyrir okkur fáeinu sem tengist slíku.

Við sjáum fyrir börnum okkar þegar við kennum þeim að vinna. Ég ælta að segja ykkur frá Jacob, ömmusyni mínum. Hann vildi ekki fara í skólann. Mamma hans hafði reynt fjölmargt. Loks lét hún hann setjast niður og sagði við hann: „Hlutverk pabba þíns er að fara í vinnuna til að afla okkur tekna. Hlutverk mitt er að vera heima og hugsa um þig og systkini þín. Og hlutverk þitt, Jacob, er að fara í skólann.“ Þegar Jacob skildi þetta fyrirkomulag samþykkti hann að fara í skólann.

Við kennum börnum okkar einnig að vinna með því að fela þeim störf á heimilinu og að vinna utan heimilisins, sé það viðeigandi. Við hjálpum börnum okkar að sjá fyrir sér alla ævi með því að kenna þeim gildi vinnuseminnar. Byrjið snemma! Eiginmaður minn segir stærstu gjöf föður síns til hans hafa verið sjálfstæði – vegna þess að hann kenndi honum að vinna.

Góð fjármálastjórnun gerir okkur einnig kleift að sjá vel fyrir okkur. Skipuleggið fjármálin saman sem foreldrar. Kennið börnum ykkar að greina á milli langana og þarfa. Gerið ekki óraunhæfar fjárhagskröfur til maka ykkar. Þegar Hinckley forseti hafði hvatt okkur til að losa okkur við skuldir, vissi ég af föður sem settist niður með giftum börnum sínum og bað þau að greina sér frá fjárhag sínum. Hann varð undrandi þegar hann komst að því að tvö þeirra áttu í alvarlegum fjárhagsvandræðum. Hann spurði þau þá hvort hann gæti hjálpað þeim að gera fjárhagsáætlun.

Menntun og fagþjálfun gerir foreldrum kleift að sjá fyrir sér og börnum sínum. Hvetjið börn ykkar til að afla sér allrar þeirrar menntunar sem þau eiga kost á. Í sumum löndum fær ungt fólk ekki lán úr námslánasjóðum, því það hefur ekki lokið við grunnskóla. Í heimi nútímans er mjög mikilvægt að foreldrar haldi áfram að læra.

Vernda

Önnur reglan sem ég ætla að ræða um er að vernda. Vernda gegn hverju? Gegn skaða – bæði líkamlegum og andlegum. Við verndum börn okkar þegar við kennum þeim að þau hafi guðlegt gildi, þegar við förum í kirkju sem fjölskylda, þegar við höfum fjölskyldukvöld, þegar við höfum fjölskyldubæn, þegar við lærum ritningarnar. Allt virðist þetta fremur einfalt, en ég ber vitni um að í þessu felst öflug vernd.

Yfirlýsingin segir foreldra hafa þá heldu ábyrgð að vernda börn sín. Misþyrmingar geta verið tilfinningalegs eðlis, til að mynda að tala niðrandi við maka sinn eða barn sitt, brjóta niður sjálfsmat þeirra og veita þeim ekki elsku og ástúð. Feður vernda ekki fjölskyldu sína þegar þeir lemja eða slá eiginkonu sína eða börn. Systir í Vestur–Afríku sagði föður sinn hafa lamið móður sína og börnin áður en þau gengu í kirkjuna. „Núna,“ sagði hún, „kemur hann fram við okkur af virðingu og ljúfsemi, vegna þess að honum er ljós að við erum börn Guðs.“

Foreldrar vernda börn sín með því að fylgjast með hvaða vini þau velja sér. Unglingsstúlka nokkur varð reið þegar faðir hennar innti hana eftir því hvað hún gerði á kvöldin. Faðir hennar útskýrði að yfirlýsingin segði að hann ætti að vera verndari fjölskyldu sinnar, að hann elskaði dóttur sína og vildi því ganga úr skugga um að allt væri í lagi.

Við verðum líka að vernda börn okkar gegn áhrifum fjölmiðlanna. Við þurfum að vita hvað börn okkar horfa á í sjónvarpi, í leikhúsi og á heimilum vina sinna. Ef talva er á heimili ykkar, gangið þá úr skugga um að hún sé nýtt til einhvers sem er „dyggðugt, fagurt, háleitt eða lofsvert“ (Trúaratriðin 1:13).

Við njótum verndar þegar við fylgjum lifandi spámanni. Hvernig hafið þið notið verndar sem fjölskylda af því að fylgja þeirri leiðsögn Hinckleys forseta að lesa Mormónsbók? Nýverið fékk ég bréf frá systur í Englandi. Hún skrifaði:

„Ég og börnin höfum reynt að gera okkar besta á síðastliðnu ári, þótt eiginmaður minn hafi ákveðið að hætta að sækja kirkju. Hann hefur verið virkur alla ævi og hefur verið í biskupsráði. Ég hef ákallað Drottin af öllu hjarta um hvað ég geti gert til að finna ekki til reiði og biturleika. Ein hef ég fjölskyldukvöld og fjölskyldubæn með börnum okkar. Þegar ég var í musterinu fann ég mig knúna, vegna áskorunarinnar um lestur Mormónsbókar, til að hafa ekki ritningarstund einsömul með börnunum, heldur að fara með börnin og ritningarnar til eiginmanns míns, hvar sem hann kunni að vera í húsinu. Svo við leituðum hann upp kl. níu hvert kvöld. Hann les með okkur – ekki í fyrstu, en núna gerir hann það. Hann kemur nú á kirkjusamkomur, er með okkur á fjölskyldukvöldum og leiðir umræður um fagnaðarerindið. Börnin mín voru fætur Drottins er færðu eiginmanni mínum hið endurleysandi orð. Þetta hefur orðið fjölskyldu minni til mikillar blessunar.“

Ala upp

Þriðja og síðasta reglan er að ala upp. Hvað er uppeldi? Hvað felst í því? Hver er grunntónn þess? Uppeldi hefur að grunntóni ritningargreinina sem segir: „Með fortölum einum, með umburðarlyndi, með mildi og hógværð og með fölskvalausri ást – með góðvild“ (K&S 121:41–42). Ég ætla einungis að tilgreina nokkur dæmi.

Ég tel uppeldi vera ástúðlega ögun. Móðir nokkur grípur inn í þegar barn hennar hlýðir ekki. Hún tekur um höfuð þess báðum höndum, horfir í augu þess og segir: „Hlustaðu á það sem ég segi.“ Við verðum að kenna börnum okkar rétta ákvarðanatöku. Við getum ekki breytt afleiðingum gjörða þeirra. Minnist þess að kjarninn í áætlun himnesks föður er sjálfræði.

Hvað felst í uppeldi? Oft fer kennslan og efling fjölskyldubanda fram á stuttum og óskipulögðum stundum í okkar daglega lífi. Kvöldverðarborðið er tilvalið til samskipta; greina frá daglegum gjörðum, hlusta á og hvetja hvert annað og jafnvel hlægja saman. Ég veit að hláturinn léttir lífið. Kæru mæður og feður, hafið máltíðir reglubundið fyrir fólkið sem þið elskið.

Hafið þið skilað hlutverki ykkar þegar börnin eru vaxin úr grasi og orðin sjálfstæð? Nei, því líkur aldrei. Okkar mikilvæga málefni er að skapa eilífar fjölskyldur. Þegar ég og eiginmaður minn þjónuðum í trúboði í Englandi, kom einn sonur okkar með fjölskyldu sína í heimsókn. Ég minnist þessara orð hans þá: „Við komum til að láta ala okkur upp.“ Einu sinni foreldri, alltaf foreldri. Er það ekki fyrir bestu? Þegar ég lauk við lestur Mormónsbókar í desember, varð mér ljóst að jafnvel Mormón veitti fullorðnum syni sínum, Moróní, þessa leiðsögn: „Sonur minn, vertu trúr í Kristi. … Megi Kristur lyfta þér upp, … og miskunn hans og langlyndi og vonin um dýrð hans og eilíft líf hvíla í huga þínum að eilífu“ (Moro 9:25).Hver er grunntónn uppeldis? Stundum er aðeins mögulegt að draga út úr unglingi eins atkvæða orð þegar við reynum að fá fram svör. Hér er ein spurning sem hefur verið mér afar gagnleg við að breyta því: „Hver er erfiðasti vandi þinn einmitt núna?“ Þessi spurning gefur unglingi kost á að ljúka upp hjarta sínu. Og ljúki hann upp hjarta sínu, skuluð þið bara hlusta! Ekki dæma eða ráðleggja eða gera nokkuð annað. Hlustið aðeins. Þið verðið undrandi yfir tjáskiptunum og tengslunum sem myndast. Biskupar og ráðgjafar, þessi spurning getur skilað miklum árangri er þið eigið viðtal við unga fólkið í deild ykkar.

Uppeldi hefur fjölskyldubæn að grunntóni. Ein sterkasta minningin um föður minn er þegar við systkinin krupum við rúm foreldra okkar, í þröngu svefnherberginu, og við hlýddum á föður okkar ákalla himneskan föður um að blessa móður okkar, sem var á sjúkrahúsi. Að heyra föður minn úthella hjarta sínu, auðveldaði mér að eignast fullvissu um að Guð væri á himnum og hlustaði. Biðjið fyrir börnum ykkar varðandi skólanám þeirra og að þau njóti verndar yfir daginn. Börn okkar skynja elsku okkar og væntingar þegar þau hlusta á okkur biðja fyrir þeim.

Efla fjölskyldur

Hvernig styrkjum við og styðjum þær fjölskyldur sem við þjónum sem leiðtogar? Þið getið notað þessar sömu reglur – sjá fyrir, vernda og ala upp – til að efla fjölskyldurnar í deild ykkar.

Leiðtogar styrkja foreldra með því að virða þá, en ekki að taka fram fyrir hendur þeirra þegar börn þeirra eru annars vegar. Þið getið verið leiðbeinendur, þið getið rætt sameiginleg áhugamál, en verðið að beygja ykkur undir vilja foreldranna. Móðir nokkur sagði: „Mér finnst oft að eiginmaður minn og ég séum sísta fólkið sem unglingssonur okkar vill ræða við. Stundum hefur sonur okkar ekki hlustað á okkur og látið undan þrýstingi jafnaldra sinna. Ég er þakklát fyrir skynsama kirkjuleiðtoga sem leiðbeint hafa syni okkar. Þeir hafa aldrei vanvirt hlutverk okkar sem foreldra. Þeir hlustuðu, lögðu áherslu á leiðsögn okkar og vísuðu unglingum okkar til okkar.“

Við höfum öll þarfir sem fjölskyldur. Hér eru nokkur ljúfsár orð um móður sem var einsömul við uppeldið. Ég ætla að segja ykkur frá fimm barna móður sem átti eiginmann sem var við skyldustörf í ókunnugu landi. Hún sagði:

„Þegar eiginmaður minn fór snemma í febrúar, áttum við þrjá ökufæra bíla. Í nóvember höfðu þeir þó allir bilað og okkur tókst aðeins að laga tvo þeirra. Á þessum tíma sagði sautján ára sonur minn mér að hann hugðist ekki fara í trúboð, því hann væri ekki viss um að fagnaðarerindið væri sannleikur. Hafi ég enhvern tíma haft þörf á prestdæmisblessun á ævi minni, þá var það á þessum tíma. Ég man ekki hvert smáatriði, eða hvenær og hvar, en ég man greinilega eftir að hafa fengið fleiri en eina blessun frá umhyggjusömum prestdæmishöfum á þessum tíma. Ég vissi alltaf að ég gat hringt í heimiliskennara mína og þeir kæmu að vörmu spori. Hvorugur þeirra gat lagfært bílinn, en þeir gátu veitt mér þráða prestdæmisblessun og fundið einhvern sem gat lagfært hann.

Trúfastir heimiliskennarar gerðu gæfumuninn hjá þessari fjölskyldu og þeir geta gert slíkt hjá öllum einstæðum foreldrum, er þeir kynnast þeim, ávinna sér traust þeirra og veita prestdæmisblessanir. Biskupar, leiðtogar háprestaflokka og öldungasveitarforsetar – slíkar mæður þurfa prestdæmisblessanir á heimili sitt og einnig hinar einhleypu undraverðu systur.

Fyrir tíu árum varaði Hinckley forseti við „hægfara hnignun heimsins,“ þegar hann kynnti yfirlýsinguna. Hin spámannlega yfirlýsing staðfesti „reglur, kenningar og framgang“3 Drottins varðandi fjölskylduna. Heimurinn reynir hins vegar að skilgreina hlutverk kenna og mæðra. Konum nútímans er talin trú um að þær þurfi glæsilegan starfsferil, að vera í hvers kyns samtökum og að eignast börn, hafi þær tök á því. Hið hefðbundna móðurhlutverk er á hröðu undanhaldi. Ég undirstrika: Við megum ekki leyfa heiminum að draga úr gildi þess sem við vitum að gefin er með guðlegri forsjá.

Systur, ég beini nú máli mínu beint til ykkar um stund. Það er blessun okkar og ábyrgð sem þegnar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, að efla og styðja fjölskyldueininguna. Allir tilheyra fjölskyldu og allar fjölskyldur þarf að styrkja og vernda.

Mín eigin móðir og amma veittu mér mestu hjálpina við að verða húsmóðir og síðan systur í Líknarfélaginu í hinum ýmsu deildum sem við höfum átt aðild að. Ég lærði heimilishald og sá gleðina sem veittist af því að skapa heimili þar sem aðrir vildu dvelja. Nýjar leiðbeiningar um heimilis-, fjölskyldu-, og sjálfseflingarfundi og starfsemi tóku gildi í janúar 2006. Þær sjá öllum systrum fyrir auknum sveigjanleika til þátttöku í Líknarfélaginu. Leiðtogar Líknarfélagsins, gangið úr skugga um að fundirnir og starfsemin sem þið skipuleggið verði til að efla heimili allra systranna.

Heimsóknarkennslan er annað tæki til að efla fjölskylduna. Ég vona að þið eigið allar kost á að vera heimsóknarkennarar. Heimsóknarkennarar efla ekki aðeins systurnar andlega, heldur eru þær einnig í einstæðri stöðu til að uppfylla og meta þarfir. Leiðtogar Líknarfélagsins, verið virkar á velferðarfundum ykkar og ræðið andlegar og stundlegar þarfir, sem heimsóknarkennarar hafa tilgreint.

Hin hreina ást Krists

Þau ykkar sem eruð gift, hugsið til baka. Hvers vegna urðuð þið ástfangin af maka ykkar? Ef þið minnist þess, getið þið fyllst anda fyrirgefningar. Tjáið hvort öðru ást ykkar. Eiginkona getur gert gæfumuninn hvað eiginmann hennar varðar, með því að efla sjálfstraust hans. Eiginmaður getur lýst upp myrkan dag með þessum þremur einföldum orðum: „Ég elska þig.“ Ein stærsta gjöf sem foreldrar geta gefið börnum sínum er að sýna þeim að þau elski hvort annað.

Hlutverk okkar sem foreldrar og uppalendur réttlátra barna, er að sjá fyrir þeim, vernda þau og ala önn fyrir þeim og það gerum við sem jafningjar. Við gerum það sama sem leiðtogar. Það krefst mikillar vinnu að vera leiðtogi. Það krefst mikillar vinnu að vera foreldri. Við verðum fyrir vonbrigðum, en höldum samt áfram. Ég tel að við lærum mikið um hina hreinu ást Krists í fjölskyldu okkar og með þjónustu í kirkjunni.

Við þurfum sem foreldrar að sýna börnum okkar þá elsku sem himneskur faðir sýnir okkur. Í Moróní 8:17 er ritað: „Ég er fullur kærleika, sem er ævarandi elska.“ Bætið við þessum orðum Drottins: „Klæðist bandi kærleikans, sem kyrtill væri, bandi fullkomnunar og friðar“ (K&S 88:125). Ég býð ykkur að klæðast kyrtli kærleikans í öllum ykkar samskiptum, og umvefja fjölskyldu ykkar hinni hreinu ást Krists.

Megi Drottinn blessa okkur, sem fjölskyldur og leiðtoga, við að umlykja þá sem við elskum í kyrtil kærleikans, svo við getum snúið að nýju í návist föður okkar á himnum til að dvelja að eilífu hjá honum. Í nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

1. Sjá „Gleðjist í forréttindum þjónustu,“ Gordon B. Hinckley, heimsþjálfunarfurndur, 21. júní 2003, 22.

2. „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins,“ Vonarstjarnan, júní 1996, 10.

3. “Stand Strong against the Wiles of the World,” Ensign, nóv. 1995, 100.

 
© 2009 Intellectual Reserve, Inc. All rights reserved.   Rights and use information.  Privacy policy