126. kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í húsi Brighams Young í Nauvoo, Illinois, 9. júlí 1841 (History of the Church, 4:382). Á þessum tíma var Brigham Young forseti tólfpostulasveitarinnar.

1–3, Brigham Young fær lof fyrir störf sín og er leystur undan ferðalögum á komandi tímum.

  ELSKULEGI og ástkæri bróðir, Brigham Young, sannlega segir Drottinn svo við þig: Þjónn minn Brigham, ekki er þess lengur krafist, að þú yfirgefir fjölskyldu þína eins og áður fyrr, því að fórn þín er mér þóknanleg.

  Ég hef fylgst með starfi þínu og erfiði á ferðum þínum fyrir nafn mitt.

  Þess vegna býð ég þér að senda orð mitt út og annast fjölskyldu þína sérstaklega héðan í frá og að eilífu. Amen.