44. kafli
1–3, Öldungarnir skulu koma saman til ráðstefnu; 4–6, Þeir skulu skipuleggja sig í samræmi við lög landsins og annast hina fátæku.
1 SJÁ, svo segir Drottinn til yðar þjóna sinna: Mér þykir nauðsynlegt, að öldungar kirkju minnar verði kallaðir saman með bréfi eða á annan hátt, frá austri og vestri, frá norðri og suðri.
2 Og svo ber við, að sem þeir eru staðfastir og iðka trú á mig, svo mun ég úthella anda mínum yfir þá þann dag, sem þeir koma saman.
3 Og svo ber við, að þeir skulu fara til nærliggjandi landsvæða og prédika fólkinu iðrun.
4 Og svo margir munu snúast til trúar, að þér fáið kraft til að skipuleggja yður í samræmi við lög manna—
5 Svo að óvinir yðar fái ekkert vald yfir yður og þér verðið verndaðir í öllu, og yður verði fært að halda lögmál mín, og rjúfa megi sérhvert það haft, sem óvinurinn leitast við að tortíma fólki mínu með.
6 Sjá, ég segi yður, að þér verðið að vitja hinna fátæku og þurfandi og veita þeim líkn, svo að þeir hljóti stuðning uns allt verður gjört í samræmi við lögmál mitt, sem þér hafið meðtekið. Amen.

