80. kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Hiram, Ohio, í mars 1832 (History of the Church, 1:257).

1–5, Stephen Burnett og Eden Smith eru kallaðir til að prédika hvar sem þeir vilja.

  SANNLEGA, svo segir Drottinn við þig, þjón minn Stephen Burnett: Far þú, far þú út í heiminn og prédika fagnaðarerindið hverri skepnu, sem heyra má raust þína.

  Og þar eð þú æskir félaga, mun ég gefa þér þjón minn Eden Smith.

  Farið þess vegna og prédikið fagnaðarerindi mitt, hvort heldur er í norðri eða suðri, austri eða vestri, það skiptir engu, því að þér getið ekki farið villu vegar.

  Boðið þess vegna það, sem þér hafið heyrt og sannlega trúið og vitið að er sannleikur.

  Sjá, þetta er vilji hans, sem hefur kallað yður, lausnara yðar, sjálfs Jesú Krists. Amen.