2. kafli
Útdráttur úr orðum engilsins Morónís til spámannsins Josephs Smith meðan hann dvaldi á heimili föður síns í Manchester, New York, kvöldið 21. september 1823 (History of the Church, 1:12). Moróní var síðastur í langri röð sagnaritara, sem ritað höfðu heimildir þær, er nú liggja frammi fyrir heiminum sem Mormónsbók. (Berið saman við Malakí 4:5, 6; einnig kafla 27:9; 110:13–16 og 128:18.)
1, Elía á að opinbera prestdæmið; 2–3, Fyrirheit feðranna eru gróðursett í hjörtum barnanna.
1 SJÁ, með hendi spámannsins Elía opinbera ég yður prestdæmið, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur.
2 Og hann mun gróðursetja í hjörtum barnanna fyrirheitin, sem feðrunum voru gefin, og hjörtu barnanna munu snúa til feðra sinna.
3 Ef svo væri ekki, mundi jörðin öll verða gjöreydd við komu hans.
Opinber vefsíða Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu
© 2013 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn