4. kafli
1–4, Dygg þjónusta frelsar þjóna Drottins; 5–6, Guðlegir eiginleikar gera þá hæfa til þjónustunnar; 7, Leita verður þess sem Guðs er.
1 SJÁ nú, undursamlegt verk er að hefjast á meðal mannanna barna.
2 Ó þér, sem gangið í þjónustu Guðs, gætið þess því að þjóna honum af öllu hjarta yðar, mætti, huga og styrk, svo að þér megið standa saklausir frammi fyrir Guði á efsta degi.
3 Ef þér þráið þess vegna að þjóna Guði, eruð þér kallaðir til verksins—
4 Því að sjá, akurinn er þegar hvítur til uppskeru; og tak eftir, að sá sem beitir sigð sinni af mætti sínum, sá hinn sami safnar sér forða, svo að hann farist eigi, heldur búi sálu sinni hjálpræði—
5 Og trú, von, kærleikur og ást, með einbeittu augliti á dýrð Guðs, gjörir hann hæfan til verksins.
6 Hafið í huga trú, dyggð, þekkingu, hófsemi, þolinmæði, bróðurlega góðvild, guðrækni, kærleik, auðmýkt, kostgæfni.
7 Biðjið og yður mun gefast, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Amen.
Opinber vefsíða Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu
© 2013 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn