2010–2019
Embættismenn kirkjunnar studdir
október 2014


Embættismenn kirkjunnar studdir

Þess er beiðst að við styðjum Thomas Spencer Monson sem spámann, sjáanda og opinberara og forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu; Henry Bennion Eyring sem fyrsta ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu; og Dieter Friedrich Uchtdorf sem annan ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu.

Þeir sem eru því samþykkir sýni það.

Þeir sem eru því mótfallnir sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum Boyd Kenneth Packer sem forseta sveitar postulanna tólf og eftirtalda sem meðlimi sveitarinnar: Boyd K. Packer, L. Tom Perry, Russell M. Nelson, Dallin H. Oaks, M. Russell Ballard, Richard G. Scott, Robert D. Hales, Jeffrey R. Holland, David A. Bednar, Quentin L. Cook, D. Todd Christofferson og Neil L. Andersen.

Þeir sem eru því samþykkir sýni það.

Sé einhver á móti, sýni hann það.

Þess er beiðst að við styðjum ráðgjafana í Æðsta forsætisráðinu og postulana tólf sem spámenn, sjáendur og opinberara.

Allir sem eru því samþykkir sýni það.

Ef einhver á móti, sýni hann það með sama merki.

Þess er beiðst að við leysum af með þakklæti fyrir trúfasta þjónustu öldungana Carlos H. Amado og William R. Walker, sem meðlimi í Fyrstu sveit hinna Sjötíu og tilnefnum þá sem fyrrverandi aðalvaldhafa.

Þeir sem vilja sýna þakklæti fyrir trúfasta þjónustu þeirra, sýni það vinsamlega.

Öldungarnir Arayik V. Minasyan og Gvido Senkans hafa verið leystir af sem svæðishafar Sjötíu. Þess er beiðst að við sýnum þeim þakklætisvott með handaruppréttingu.

Allir sem eru því samþykkir sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum aðra aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalforsætisráð aðildarfélaga eins og skipan þeirra eru nú.

Þeir sem eru því samþykkir sýni það.

Ef einhver á móti sýni hann það.

Við þökkum ykkur, bræður og systur, fyrir trú ykkar og bænir.