Tónlist
Þegar hann kemur aftur


46

Þegar hann kemur aftur

Með lotningu

1. Mig undrar! Hvernig kemur hann?

Með kór og englasöng?

Hvort verður það á vetrartíð

eða vorkvöld björt og löng?

Hvort einhver stjarna skærast skín,

langskærast himinláð?

Hvort breytist nótt í dýrðardag?

Hvort dýrum fatist ráð?

Ég er viss, hann biður börnin smá

að safnast öll til sín,

því fyrr á öldum sagði svo:

„Sendið börnin öll til mín.“

2. Ég hugsa, þegar kemur hann,

hvort verði´ eg viðbúinn,

að líta´ í ástrík augun hans

með einlægt bænarsinn?

hvern dag vil gjöra vilja hans,

að lýsi ljósið mitt,

svo aðra langi einnig, Guð,

að eignast ljósið þitt.

Þegar sæludagur sá er hér,

hann segir við mig þá:

„Þú gerðir vel, mitt blessað barn.

Búa´ um eilífð skalt mér hjá.“

Lag og texti: Mirla Greenwood Thayne, f. 1907.

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

© 1952 Mirla Greenwood Thayne, Provo, Utah. Endurnýjaður 1980. Birt með leyfi. þennan söng má afrita til nota heima eða Í kirkju, en ekki Í hagnaðarskyni.

Matteusarguðspjall 16:27

Matteusarguðspjall 19:13–15