Tónlist
Borinn er sveinn í Betlehem


83

Borinn er sveinn í Betlehem

Fagnandi

1. Í Betlehem er barn oss fætt,

barn oss fætt.

Því fagni gjörvöll Adams ætt.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

2. Það barn oss fæddi fátæk mær,

fátæk mær.

Hann er þó dýrðar Drottinn skær.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

3. Hann var í jötu lagður lágt,

lagður lágt.

en ríkir þó á himnum hátt.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

4. Hann vegsömuðu vitringar,

vitringar.

hann tigna himins herskarar.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

5. Þeir boða frelsi’ og frið á jörð,

frið á jörð.

og blessun Drottins barnahjörð.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

6. Vér undir tökum englasöng,

englasöng.

og nú finnst oss ei nóttin löng.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

7. Vér fögnum komu frelsarans,

frelsarans.

vér erum systkin orðin hans.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

8. Hvert fátækt hreysi höll nú er,

höll nú er.

því Guð er sjálfur gestur hér.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

9. Í myrkrum ljómar lífsins sól,

lífsins sól.

Þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól.

[Chorus]

Hallelúja, hallelúja.

Texti: Latn. sálmur frá 14. öld.

Íslensk þýðing: Valdimar Briem

Lag: Danskt lag frá miðöldum

Lúkasarguðspjall 2:1–20

Matteusarguðspjall 2:1–11