Tónlist
Dvel hjá mér, Guð


54

Dvel hjá mér, Guð

Biðjandi

1. Dvel hjá mér, Guð, því dimma tekur ótt,

dvel hjá mér Herra, bráðum kemur nótt.

Nær sérhver aðstoð bregst í heimi hér,

ó, Herra, Jesús, vertu þá hjá mér.

2. Fölnar hver rós, er fegrar nú vor spor,

flöktandi skuggi hér er ævi vor.

Ó, hversu allt er undur hverfult hér,

dvel, óumbreytanlegi Guð, hjá mér.

3. Hjarta mitt fyllir fró þín nálægð hrein,

freistinga valdið sigrar náð þín ein.

Þú gegnum skin og skúr mig leiðir hér,

og skjól mér veitir, Herra, dvel hjá mér.

Texti: Henry F. Lyte, 1793–1847

Lag: William H. Monk, 1823–1899

Íslensk þýðing: Sigurbjörn Sveinsson, 1878–1950

Lúkasarguðspjall 24:29

Jóhannesarguðspjall 15:4–12