Tónlist
Kom, kóngur konunganna


15

Kom, kóngur konunganna

Ákveðið

1. Kom, kóngur konunganna brátt,

því komubiðin er oss löng,

með þína líkn og læknismátt

og leið vorn frelsissöng.

Kom, alda þrá með engla sveim

og Ísrael þinn leiddu heim.

2. Bind enda’ á ógn og synd,

lát eldinn hreinsa þessa jörð

og réttleiks ríkja mynd,

svo réttlætt Drottins hjörð

þér hefji söngva sætan hreim,

alsæl til þín að komast heim.

3. Hósanna ómar þá

þín endurleysta fjöld

og fagnandi þar fá

að fullu sigurgjöld

og fylla hæstu himin göng

með helgum Síonsborgar söng.

4. Kom, prinsinn friðar lífs og ljóss,

við lofið þúsundfalt.

Í altign æðsta hróss

um eilífð ríkja skalt.

Þér heiðnar þjóðir lúta lágt,

þig lofar sérhver tunga hátt.

Texti: Parley P. Pratt, 1807–1857

Lag: Ókunnur höfundur, um 1889

Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923

Kenning og sáttmálar 45:39, 44

Jesaja 35:10