Tónlist
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós


48

Ó, faðir, gjör mig lítið ljós

Biðjandi

1. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós

um lífs míns stutta skeið,

til hjálpar hverjum hal og drós,

sem hefur villst af leið.

2. Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt,

sem brosir öllum mót

og kvíðalaust við kalt og hlýtt

er kyrrt á sinni rót.

3. Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag,

sem lífgar hug og sál

og vekur sól og sumardag,

en svæfir storm og bál.

4. Ó, faðir, gjör mig styrkan staf

að styðja hvern sem þarf,

uns allt það pund, sem Guð mér gaf,

ég gef sem bróðurarf.

5. Ó, faðir, gjör mig sigursálm,

eitt signað trúarlag,

sem afli blæs í brotinn hálm

og breytir nótt í dag.

Texti: M.B.B. Edwards, 1836–1919, ensk frú, rithöfundur

Lag: Jónas Tómasson, 1881–1967

Markúsarguðspjall 4:21–23

Mósía 2:17