Tónlist
Ó, Jesús bróðir besti


115

Ó, Jesús bróðir besti

Með tilbeiðslu

1. Ó, Jesús bróðir besti

og barna vinur mesti,

æ, breið þú blessun þína

á barnæskuna mína.

2. Mér gott barn gef að vera

og góðan ávöxt bera,

en forðast allt hið illa,

svo ei mér nái´ að spilla.

3. Það ætíð sé mín iðja

að elska þig og biðja,

þín lífsins orð að læra

og lofgjörð þér að færa.

4. Þín umsjón æ mér hlífi

í öllu mínu lífi,

þín líknarhönd mig leiði

og lífsins veginn greiði.

5. Mig styrk í stríði nauða,

æ, styrk þú mig í dauða.

Þitt lífsins ljósið bjarta

þá ljómi´ í mínu hjarta.

6. Með blíðum barnarómi

mitt bænakvak svo hljómi:

Þitt gott barn gef að veri

og góðan ávöxt beri.

Texti: Páll Jónsson, 1812–1889

Lag: A. P. Berggreen, 1801–1880

Matteusarguðspjall 19:13–15

3 Nefí 17:21–25