Tónlist
Ó, höfuð dreyra drifið


67

Ó, höfuð dreyra drifið

Íhugult

1. Ó, höfuð dreyra drifið,

er drjúpir smáð og pínt

af höndum þræla þrifið

og þyrnum sárum krýnt,

ó, heilagt höfuð fríða,

er himnesk lotning ber,

en háðung hlaust að líða,

mitt hjarta lýtur þér.

2. Æ, virztu við mig kannast,

svo vondur sem ég er,

og sauð þinn auman annast,

sem einatt villur fer.

Mér virztu særðum svala,

í sálar þungri neyð,

æ, virztu við mig tala

og vísa’ á rétta leið.

3. Ég vil þar vera hjá þér,

er veit ég píndan þig,

og eigi fara frá þér.

Æ fyrirlít ei mig.

Er dauðans svefn fær sigið

á signað auga þitt,

ég vil þitt höfuð hnigið

við hjartað leggja mitt.

4. Af hjarta þér ég þakka,

að þyngstan kvaladeyð

þú ljúft þér lézt að smakka,

svo leystir mig úr neyð.

Lát, Kristur, kærleiksríkur,

ei kulna trú hjá mér,

en loks, er ævi lýkur,

mig lát þú deyja’ í þér

Texti: Karen Lynn Davidson, 1943–2019

Lag: Hans Leo Hassler, 1564–1612; úts. af J.S. Bach, 1685–1750

Íslensk þýðing: Helgi Hálfdánarson, 1826–1894

2 Nefí 2:6–9

Matteusarguðspjall 27:26–31, 34–35