Tónlist
Andi Guðs sveif áður fyrr


107

Andi Guðs sveif áður fyrr

Með hrifningu

1. Andi Guðs sveif áður fyrr

yfir vatnadjúpi.

Upp þá lukust ljóssins dyr,

létti’ af myrkra hjúpi.

Upp reis jörðin ung og ný,

árdags geislum böðuð í,

þá úr dimmu djúpi.

2. Andi Guðs sveif annað sinn

yfir vatni köldu,

þegar lét sig lausnarinn

lauga’ í Jórdans öldu.

Opnast himinn, eins og nýtt

upp rann náðarljósið blítt

dauða’ úr djúpi köldu.

3. Andinn svífur enn sem fyr

yfir vatni tæru,

opnast himins dýrðar dyr

Drottins börnum kæru.

Eftir skírnar blessað bað

blómið upp vex nýdvöggvað

lífs í ljósi skæru.

Texti: Valdimar Briem, 1848–1930

Lag: J. P. E. Hartmann, 1805–1900

Matteusarguðspjall 3:16–17

Rómverjabréfið 6:3–4