Ritningar
Vitnisburður þriggja vitna


Vitnisburður þriggja vitna

Veri það heyrinkunnugt öllum þjóðum, kynkvíslum, tungum og lýðum, sem þetta verk sjá: Að við höfum fyrir náð Guðs föður og Drottins vors Jesú Krists séð töflur þær, sem heimildir þessar geyma, en þær segja frá Nefíþjóðinni, svo og Lamanítum, bræðrum hennar, og auk þess þjóð Jareds, sem kom úr turninum, sem um hefur verið rætt. Við vitum einnig, að þær hafa verið þýddar með gjöf og krafti Guðs, því að rödd hans hefur sagt okkur það. Við vitum því með vissu, að verk þetta er sannleikur. Og við berum því einnig vitni, að við höfum séð leturgröftinn, sem er á töflunum, og þær hafa verið okkur sýndar með krafti Guðs, en ekki manna. Og við lýsum því yfir í fullri alvöru, að engill Guðs sté niður af himni, og hann hafði töflurnar meðferðis og lagði þær fyrir auglit okkar, svo við litum og sáum þær og leturgröftinn á þeim. Og við vitum, að það er fyrir náð Guðs föður og Drottins vors Jesú Krists, að við sáum þessa hluti, og berum því vitni, að þeir eru sannir. Í augum okkar er það undursamlegt. Engu að síður bauð rödd Drottins okkur að bera vitni um þetta, og til þess að vera hlýðnir fyrirmælum Guðs berum við þessu vitni. Og við vitum, að ef við erum trúir í Kristi, munum við hreinsa klæði okkar af blóði allra manna og reynast flekklausir fyrir dómstóli Krists, og munum dvelja eilíflega með honum á himnum. Og heiðurinn sé föðurins og sonarins og hins heilaga anda, sem eru einn Guð. Amen.

Oliver Cowdery

David Whitmer

Martin Harris