Ritningar
2 Nefí 31


31. Kapítuli

Nefí segir frá því hvers vegna Kristur var skírður — Menn verða að fylgja Kristi, láta skírast, meðtaka heilagan anda og standa stöðugir allt til enda, til að frelsast — Iðrun og skírn eru hliðið að hinum krappa og þrönga vegi — Eilíft líf hljóta þeir sem halda boðorðin eftir skírn. Um 559–545 f.Kr.

1 Og nú læt ég, Nefí, aspádómum mínum fyrir yður lokið, ástkæru bræður mínir. Og ég get ekki fært nema lítið eitt í letur af því, sem ég veit, að hlýtur óhjákvæmilega að koma fram. Eins get ég aðeins fært fá orð bróður míns, Jakobs, í letur.

2 Þess vegna læt ég það nægja, sem ég hef ritað, að viðbættum nokkrum orðum, sem ég vil segja um akenningar Krists. Ég mun þess vegna tala greinilega við yður í samræmi við skilmerkilega spádóma mína.

3 Því að sál mín hefur unun af hreinskilni, því að eftir hennar leiðum vinnur Drottinn Guð meðal mannanna barna. Því að Drottinn Guð veitir skilningnum aljós, því að hann talar við menn á þeirri btungu, sem þeir skilja.

4 Þess vegna vil ég, að þér hafið hugfast, að ég hef sagt yður frá aspámanninum, sem Drottinn sýndi mér, að skíra mun bGuðslambið, sem bera ætti burtu synd heimsins.

5 Og ef Guðslambið, sem er heilagt, þarf á því að halda að láta askírast í vatni til að fullnægja öllu réttlæti, ó hversu miklu meiri þörf höfum vér þá, sem vanhelgir erum, til að láta skírast, já, einnig í vatni!

6 Og nú spyr ég yður, ástkæru bræður, á hvern hátt fullnægði Guðslambið öllu réttlæti með því að láta skírast í vatni?

7 Vitið þér ei, að hann var heilagur? En þótt hann væri heilagur, sýndi hann mannanna börnum, að í holdinu auðmýkti hann sig fyrir föðurnum og vitnaði fyrir föðurnum að hann vildi ahlýða honum og halda boðorð hans.

8 Og vegna þessa kom heilagur andi yfir hann í alíki bdúfu, eftir að hann hafði látið skírast í vatni.

9 Og enn á ný sýnir það mannanna börnum, að vegurinn er krappur og ahliðið þröngt, sem þeim er ætlað að fara inn um, þar eð hann hefur sýnt þeim fordæmi.

10 Og hann sagði við mannanna börn: aFylgið mér. En ástkæru bræður, getum við bfylgt Kristi, nema við séum fúsir til að halda boðorð föðurins?

11 Og faðirinn sagði: Iðrist, iðrist þér og látið skírast í nafni míns elskaða sonar.

12 Og rödd sonarins barst mér einnig og sagði: Þeim, sem lætur skírast í mínu nafni, mun faðirinn agefa heilagan anda eins og mér. bFylgið mér þess vegna og gjörið það, sem þér hafið séð mig gjöra.

13 Þess vegna veit ég, ástkæru bræður mínir, að ef þér fylgið syninum af hjartans einlægni og án þess að hræsna fyrir Guði eða hafa blekkingar í frammi, heldur með sönnum ásetningi, með því að iðrast synda yðar og vitna fyrir föðurnum, að þér eruð fúsir til að taka á yður nafn Krists með askírn — já, með því að fylgja Drottni yðar og frelsara niður í vatnið eins og orð hans mæla fyrir, sjá, þá munuð þér meðtaka heilagan anda. Já, þá kemur bskírn eldsins og heilags anda. Og þá getið þér talað með ctungu engla og lofsungið hinum heilaga Ísraels.

14 En sjá, ástkæru bræður mínir. Þannig kom rödd sonarins til mín og sagði: Þegar þér hafið iðrast synda yðar og vitnað fyrir föðurnum, að þér séuð fúsir að halda boðorð mín með því að láta skírast í vatni og hafið tekið á móti skírn eldsins og heilags anda og getið talað nýja tungu, já, jafnvel tungu engla, og aafneitið mér síðan, þá hefði verið bbetra fyrir yður að hafa ekki þekkt mig.

15 Og ég heyrði rödd föðurins segja: Já, orð míns elskaða sonar eru rétt og sönn. Sá, sem stöðugur stendur allt til enda, mun frelsast.

16 Og af þessu veit ég, ástkæru bræður mínir, að fylgi maðurinn ekki astaðfastlega bfordæmi sonar hins lifanda Guðs allt til enda, getur hann ekki frelsast.

17 Þess vegna skuluð þér gjöra það, sem ég hef sagt yður, að ég hafi séð Drottin yðar og lausnara gjöra. Því að í þeim tilgangi hefur mér verið sýnt það, til að þér megið þekkja hliðið, sem yður er ætlað að fara inn um. Því að hliðið, sem yður er ætlað að fara inn um, er iðrun og askírn í vatni. Og þá kemur að bfyrirgefningu synda yðar með eldi og heilögum anda.

18 Og þá eruð þér á hinum akrappa og þrönga bvegi, sem liggur til eilífs lífs. Já, þér eruð komnir inn fyrir hliðið. Þér hafið hlýtt boðorðum föðurins og sonarins, og þér hafið tekið á móti heilögum anda, sem cvitnar um föðurinn og soninn til uppfyllingar fyrirheitinu, sem hann gaf og sagði, að yður mundi veitast, ef þér gengjuð inn á þennan veg.

19 Og nú, ástkæru bræður mínir, vil ég spyrja, hvort allt sé afengið, þegar þér hafið komist inn á þennan krappa og þrönga veg? Sjá, þá svara ég neitandi. Því að svo langt hafið þér aðeins náð fyrir orð Krists og óbifanlega btrú á hann og með því að ctreysta í einu og öllu á verðleika hans, sem máttinn hefur til að frelsa.

20 Þess vegna verðið þér að asækja fram, staðfastir í Kristi, í fullkomnu bvonarljósi og cást til Guðs og allra manna. Ef þér þess vegna sækið fram, endurnærðir af orði Krists og dstandið stöðugir allt til enda, sjá, þannig fórust föðurnum orð: Þér munuð öðlast eilíft líf.

21 Og sjá nú, ástkæru bræður mínir. Þetta er avegurinn, og benginn annar vegur er til og ekkert annað cnafn gefið undir himninum, sem frelsað getur manninn í Guðs ríki. Og sjá nú. Þetta er dkenning Krists, og hin eina sanna kenning eföðurins og sonarins og hins heilaga anda, sem eru feinn Guð, óendanlega. Amen.