Ritningar
Alma 10


10. Kapítuli

Lehí er af Manasse kominn — Amúlek segir frá því er engillinn bauð honum að annast Alma — Fólkinu hlíft vegna bæna hinna réttlátu — Ranglátir lögfræðingar og dómarar leggja grunninn að tortímingu fólksins. Um 82 f.Kr.

1 Hér eru aorðin, sem bAmúlek prédikaði fyrir íbúum Ammóníalands, en hann sagði:

2 Ég er Amúlek, sonur Giddóna, sem var sonur Ísmaels, afkomanda Amínadís. En það var hinn sami Amínadí, sem túlkaði áletranirnar á musterisveggnum, sem letraðar voru með fingri Guðs.

3 Og Amínadí var afkomandi Nefís, sonar Lehís, þess sem kom frá landi Jerúsalem og var afkomandi aManasse, en hann var sonur bJósefs, þess sem cseldur var til Egyptalands af bræðrum sínum.

4 Og sjá. Ég er einnig maður í dágóðu áliti meðal allra þeirra, sem þekkja mig. Já, sjá. Ég á marga frændur og avini, og iðni mín hefur fært mér mikil auðæfi.

5 Þrátt fyrir allt þetta hef ég engu að síður aldrei þekkt mikið til vega Drottins, aleyndardóma hans eða undursamlegs kraftar. Ég sagði, að ég hefði aldrei vitað mikið um þessa hluti. En sjá, mér skjátlast, því að ég hef séð mikið af leyndardómum hans og undursamlegum krafti, já, jafnvel hvernig hann hefur varðveitt líf þessarar þjóðar.

6 Engu að síður herti ég hjarta mitt, því að ég var akallaður mörgum sinnum, en ég vildi ekki bheyra. Þess vegna vissi ég um þetta, samt vildi ég ekki vita það. Þess vegna hélt ég áfram að rísa gegn Guði í ranglæti hjarta míns, já, allt fram á fjórða dag þessa sjöunda mánaðar, sem er á tíunda stjórnarári dómaranna.

7 Þegar ég var á ferð til að hitta náskyldan ættingja, sjá, þá birtist mér aengill Drottins, sem sagði: Amúlek, hverf þú aftur til húss þíns, því að þú skalt næra spámann Drottins, já, heilagan mann, útvalinn mann af Guði. Hann hefur bfastað dögum saman vegna synda þessa fólks, og hann er hungraður, og þú skalt ctaka á móti honum í húsi þínu og næra hann, og hann mun blessa þig og hús þitt, og blessun Drottins mun hvíla yfir þér og húsi þínu.

8 Og svo bar við, að ég hlýddi rödd engilsins og sneri aftur að húsi mínu. Og á leiðinni þangað fann ég amanninn, sem engillinn hafði talað við mig um og sagt: Þú skalt taka á móti honum í húsi þínu — Og sjá. Það var sá sami maður, sem hefur nú talað við yður um málefni Guðs.

9 Og engillinn sagði við mig: Hann er aheilagur maður. Þess vegna veit ég, að hann er heilagur maður, þar eð engill Guðs hefur sagt það.

10 Og enn fremur veit ég, að það, sem hann hefur vitnað um, er sannleikur. Því að sjá. Ég segi yður, að svo sannarlega, sem Drottinn lifir, hefur hann sent aengil til að opinbera mér þessa hluti. Og þetta gjörði hann, á meðan þessi Alma bdvaldi í húsi mínu.

11 Því að sjá. Hann hefur ablessað hús mitt, kvenfólk mitt, börn mín, föður minn og ættfólk mitt. Já, hann hefur meira að segja blessað allt ættfólk mitt, og blessun Drottins hefur hvílt á okkur í samræmi við þau orð, sem hann mælti.

12 Þegar Amúlek hafði mælt þessi orð, undraðist fólkið, er það sá, að afleiri en eitt vitni vitnaði um það, sem því var borið á brýn, sem og um það, sem í vændum væri, samkvæmt spádómsandanum, sem í þeim var.

13 Þó voru nokkrir meðal þeirra, sem hugðust leggja fyrir þá spurningar, svo að þeir gætu með akænsku sinni gripið þá á orðum þeirra og þannig vitnað gegn þeim og afhent þá dómurum sínum, svo að þeir yrðu dæmdir lögum samkvæmt og teknir af lífi eða varpað í fangelsi fyrir þann glæp, eða það, sem þeir gátu bent á eða vitnað um gegn þeim.

14 En þeir menn, sem reyndu að tortíma þeim, voru alögvitringar, leigðir eða skipaðir af fólkinu til að framfylgja lögunum við réttarhöld eða við yfirheyrslur fyrir dómurunum vegna lögbrota fólksins.

15 Þessir lögfræðingar voru vel að sér í öllum mannlegum klækjum og kænskubrögðum og það til þess að geta orðið færir í starfi.

16 Og svo bar við, að þeir tóku að spyrja Amúlek og vonuðust þar með eftir að gjöra hann tvísaga eða koma honum í mótsögn við sjálfan sig.

17 En þeir vissu ekki, að Amúlek gæti vitað um áform þeirra. En svo bar við, að þegar þeir tóku að spyrja hann, askynjaði hann hugsun þeirra og sagði við þá: Ó, þú rangláta og rangsnúna bkynslóð, þér lögfróðu menn og hræsnarar! Þér leggið djöflinum grundvöll, því að þér leggið cgildrur og snörur fyrir hina heilögu Guðs.

18 Þér leggið á ráðin um að arangsnúa vegum hinna réttlátu og kalla heilaga reiði Guðs yfir yðar eigin höfuð og það til algjörrar tortímingar þessa fólks.

19 Já, Mósía, síðasta konungi vorum, mæltist vel, um það bil er hann afsalaði sér konungdómi og hafði engan er tæki við af honum, sem leiddi til þess að rödd þjóðarinnar réð — Já, með réttu sagði hann, að ef sá tími kæmi, að rödd þjóðarinnar kysi yfir sig amisgjörðir, það er að segja, ef sá tími kæmi, að þessi þjóð gjörðist lögmálsbrjótur, þá væri tími tortímingarinnar upp runninn.

20 Og nú segi ég yður: Vel ferst Drottni að dæma um misgjörðir yðar. Vel ferst honum að hrópa til þessarar þjóðar með rödd aengla sinna: Iðrist þér, iðrist, því að himnaríki er í nánd.

21 Já, vel ferst honum að hrópa með rödd engla sinna: aÉg mun niður stíga til fólks míns, tygjaður sannsýni og réttvísi.

22 Já, og ég segi yður, að væri það ekki vegna abæna hinna réttlátu, sem nú eru í landinu, mundi algjör tortíming þegar hafa vitjað yðar; þó ekki með bflóði eins og á dögum Nóa, heldur með hungursneyð, drepsóttum og sverði.

23 En það er vegna abæna hinna réttlátu, sem yður er hlíft. Þess vegna mun Drottinn ekki halda að sér höndum, ef þér vísið hinum réttlátu burtu frá yður, heldur mun hann koma gegn yður í brennandi reiði sinni. Og þá mun hungursneyð, drepsóttir og sverð ljósta yður. Og btíminn er ekki langt undan, ef þér iðrist eigi.

24 Og nú bar svo við, að fólkið gjörðist enn reiðara Amúlek, og það hrópaði og sagði: Þessi maður smánar réttvís lög okkar og vitra lögfræðinga okkar, sem við höfum sjálf valið.

25 En Amúlek rétti fram hönd sína, hrópaði til þeirra þeim mun kröftugar og sagði: Ó, þú rangláta og rangsnúna kynslóð! Hví hefur Satan náð svo sterku taki á hjörtum yðar? Hví viljið þér verða honum undirgefin, svo að hann hafi vald yfir yður til að ablinda augu yðar og þér skiljið ekki þau orð, sem töluð eru sannleikanum samkvæmt?

26 Því að sjá. Hef ég borið vitni gegn lögum yðar? Þér skiljið ekki. Þér segið, að ég hafi talað gegn lögum yðar, en það hef ég ekki, heldur hef ég talað máli laga yðar, yður til fordæmingar.

27 En sjá. Ég segi yður, að óréttlæti alögvitringa yðar og dómara er farið að leggja grundvöllinn að tortímingu þessarar þjóðar.

28 Og nú bar svo við, að þegar Amúlek hafði mælt þessi orð, hrópaði fólkið gegn honum og sagði: Nú vitum við, að þessi maður er barn djöfulsins, því að hann hefur alogið að okkur; hann hefur mælt gegn lögum okkar. Og nú segist hann ekki hafa mælt gegn þeim.

29 Og enn fremur hefur hann smánað lögvitringa okkar og dómara.

30 Og svo bar við, að lögvitringarnir lögðu þetta á minnið til að geta notað það gegn honum.

31 En einn þeirra nefndist Seesrom. Hann hafði forgöngu um að aákæra Amúlek og Alma, þar eð hann var einn hinna færustu þeirra á meðal og stóð í miklum viðskiptum meðal fólksins.

32 En það, sem fyrir lögvitringunum vakti, var að hagnast, og hagnaður þeirra fór eftir verkefnum þeirra.