Ritningar
Alma 13


13. Kapítuli

Menn fá köllun æðstu presta vegna mikillar trúar sinnar og góðra verka — Þeir eiga að kenna boðorðin — Vegna réttlætis eru þeir helgaðir og ganga inn til hvíldar Drottins — Melkísedek var einn þeirra — Englar boða gleðitíðindi um landið — Þeir munu kunngjöra hina eiginlegu komu Krists. Um 82 f.Kr.

1 Og enn fremur, bræður mínir, vil ég beina hugum yðar til þess tíma, er Drottinn Guð gaf börnum sínum þessi boðorð. Og ég vil, að þér minnist þess, að Drottinn Guð avígði presta eftir sinni heilögu reglu, sem var eftir reglu sonar hans, til að kenna fólkinu þessa hluti.

2 Og prestar þessir voru vígðir eftir areglu sonar hans, á þann bhátt að fólkið mætti þannig vita, á hvern hátt það ætti að bíða sonar hans til að hljóta endurlausn.

3 Og á þennan hátt voru þeir vígðir — en í samræmi við aforþekkingu Guðs voru þeir bkallaðir og cundirbúnir frá dgrundvöllun veraldar vegna mikillar trúar sinnar og góðra verka. Í fyrstu var þeim frjálst að evelja milli góðs og ills, og þegar þeir hafa valið hið góða og auðsýnt mjög sterka ftrú, eru þeir gkallaðir heilagri köllun, já, þeirri heilögu köllun, sem fyrirbúin var með og í samræmi við undirbúning að endurlausn slíkra.

4 Og þannig hafa þeir verið akallaðir til að þjóna þessari heilögu köllun vegna trúar sinnar, á meðan aðrir, sem að öðrum kosti kynnu að hafa notið sömu bréttinda og bræður þeirra, afneita anda Guðs vegna hörkunnar í hjörtum sínum og blindunnar í hugum sínum.

5 Eða að lokum: Í fyrstu voru þeir í asömu aðstöðu og bræður þeirra. Þannig var þessi heilaga köllun fyrirbúin frá grundvöllun veraldar fyrir þá, sem ekki hertu hjörtu sín, og var það í og fyrir friðþægingu hins eingetna sonar, sem fyrirbúin var —

6 Og þannig voru þeir kallaðir þessari heilögu köllun og vígðir til hins háa prestdæmis hinnar heilögu reglu Guðs, til að kenna mannanna börnum boðorð hans, svo að þau geti einnig gengið inn til ahvíldar hans —

7 Þetta háa prestdæmi er eftir reglu sonar hans, en sú regla var til frá grundvöllun veraldar, eða er með öðrum orðum aán upphafs daganna eða loka áranna, þar eð hún var fyrirbúin frá eilífð til allrar eilífðar, samkvæmt bforþekkingu hans á öllum hlutum —

8 En þeir voru avígðir á þennan hátt — kallaðir heilagri köllun og vígðir heilagri vígslu, og tóku á sig hið háa prestdæmi hinnar heilögu reglu, en sú köllun og vígsla og það háa prestdæmi er án upphafs eða endis —

9 Þannig urðu þeir aæðstu prestar að eilífu eftir reglu sonarins, hins eingetna föðurins, sem er án upphafs daganna eða loka áranna, sem er fullur bnáðar, réttsýni og sannleika. Þannig er það. Amen.

10 En eins og ég sagði varðandi hina heilögu reglu, eða þetta aháa prestdæmi, þá voru margir vígðir og urðu æðstu prestar Guðs. Og það var vegna mikillar trúar þeirra, biðrunar og réttlætis fyrir Guði, þar eð þeir kusu að iðrast og vinna réttlætisverk fremur en farast —

11 Þess vegna voru þeir kallaðir samkvæmt þessari heilögu reglu og ahelgaðir og bklæði þeirra hvítþvegin með blóði lambsins.

12 En þegar þeir höfðu verið ahelgaðir af bheilögum anda og klæði þeirra orðin hvít og þeir chreinir og flekklausir fyrir Guði, gátu þeir einungis litið á dsynd með eviðbjóði, og margir, já, ákaflega margir, urðu hreinir og gengu inn til hvíldar Drottins Guðs síns.

13 Og nú vil ég, bræður mínir, að þér auðmýkið yður fyrir Guði og berið aávöxt samboðinn iðruninni, svo að þér megið einnig ganga inn til þeirrar hvíldar.

14 Já, auðmýkið yður, rétt eins og fólkið á dögum aMelkísedeks, sem einnig var æðsti prestur eftir þeirri sömu reglu, sem ég hef rætt um, og sem einnig tók á sig hið háa prestdæmi að eilífu.

15 Og aAbraham galt þessum sama Melkísedek btíund. Já, meira að segja faðir vor Abraham galt tíund, sem nam einum tíunda hluta alls, sem hann átti.

16 En þessar ahelgiathafnir voru veittar á þennan hátt, svo að þannig mætti fólkið vænta Guðssonar, því að það var að bfyrirmynd reglu hans, eða var hans regla, til þess að þeir gætu vænt hans til fyrirgefningar synda sinna og gætu gengið inn til hvíldar Drottins.

17 Þessi Melkísedek var konungur yfir Salemslandi, og fólk hans var djúpt sokkið í misgjörðir og viðurstyggð. Já, allt var það afvegaleitt og fullt af hvers kyns ranglæti —

18 En Melkísedek, sem hafði sýnt mikla trú og tekið við embætti hins háa prestdæmis, samkvæmt hinni aheilögu reglu Guðs, prédikaði iðrun fyrir fólki sínu. Og sjá. Það iðraðist, og Melkísedek kom á friði í landinu á sínum dögum. Því var hann nefndur friðarhöfðingi, því að hann var konungur Salem, og hann ríkti undir föður sínum.

19 En amargir voru á undan honum, og margir komu einnig á eftir honum, en benginn var honum fremri. Þess vegna hafa þeir minnst hans sérstaklega.

20 Óþarft er, að ég endurtaki þetta. Það, sem ég hef sagt verður að nægja. Sjá, aritningarnar eru fyrir framan yður. Ef þér viljið brangsnúa þeim, verður það yður til tortímingar.

21 En nú bar svo við, að þegar Alma hafði mælt þessi orð til þeirra, rétti hann fram hönd sína og hrópaði voldugri röddu og sagði: Nú er tíminn til að aiðrast, því að dagur hjálpræðisins nálgast —

22 Já, og fyrir amunn engla boðar raust Drottins það öllum þjóðum, já, boðar þeim gleðitíðindi um mikinn fögnuð. Já, og hann lætur þessi gleðitíðindi hljóma meðal alls síns fólks, já, jafnvel meðal þeirra, sem dreifðir eru víðsvegar um allt yfirborð jarðar. Þess vegna hafa þau borist oss.

23 Og oss veitist þekking á þeim í askýrum orðum, þannig að ekki verði misskilið. En þetta er svo, vegna þess að vér erum bferðamenn í ókunnu landi. Þess vegna njótum vér mikillar hylli, því að þessi gleðitíðindi eru oss boðuð á öllum svæðum víngarðs vors.

24 Því að sjá. aEnglar boða þau mörgum á þessum tíma í landi voru í þeim tilgangi að búa hjörtu mannanna barna undir að taka við orði hans, þegar hann kemur í dýrð sinni.

25 Og nú bíðum vér einungis eftir að heyra fagnaðartíðindin um komu hans boðuð oss af vörum engla. Því að tíminn kemur, en hve fljótt avitum vér ekki. Ég vildi, að Guð gæfi, að það yrði á mínum dögum, en hvort sem það verður fyrr eða síðar, þá fagna ég því.

26 Og af englavörum mun það opinberast aréttvísum og heilögum mönnum, þegar hann kemur, til þess að orð feðra vorra um það rætist, samkvæmt því sem þeir hafa sagt um hann, sem var í samræmi við spádómsandann, sem í þeim var.

27 Og nú aóska ég þess, bræður mínir, af innstu hjartans rótum, já, af svo heitri þrá, að það veldur mér sársauka, að þér hlýðið á orð mín og varpið syndum yðar frá yður og sláið ekki iðrun yðar á frest —

28 Heldur að þér auðmýkið yður fyrir Drottni og ákallið hans heilaga nafn, avakið og biðjið án afláts, svo að þér bfreistist ekki um megn fram, heldur látið þannig leiðast af hinum heilaga anda, auðmjúkir, chógværir, undirgefnir, þolinmóðir, fullir af elsku og langlundargeði —

29 Að þér ahafið trú á Drottin og von um að hljóta eilíft líf, með belsku Guðs stöðugt í hjörtum yðar, svo að yður verði lyft upp á efsta degi og þér gangið inn til chvíldar hans.

30 Og megi Drottinn gefa að þér iðrist, svo að þér kallið ekki heilaga reiði hans yfir yður og fjötrist ekki viðjum avítis og þurfið ekki að þola hinn annan bdauða.

31 Og Alma mælti mörg fleiri orð til fólksins, en þau eru ekki letruð í þessa bók.