Ritningar
Mormón 7


7. Kapítuli

Mormón býður Lamanítum á síðari dögum að trúa á Krist, meðtaka fagnaðarerindi hans og verða hólpnir — Allir sem trúa Biblíunni munu einnig trúa Mormónsbók. Um 385 e.Kr.

1 Og sjá. Nú vil ég mæla nokkur orð til þeirrar aleifar þjóðarinnar, sem hlíft var, fari svo að Guð gefi þeim orð mín og þeir fái vitneskju um feður sína. Já, ég tala til yðar, sem eftir eruð af Ísraelsætt, en þetta eru orðin, sem ég mæli:

2 Þér skuluð vita, að þér eruð af aÍsraelsætt.

3 Þér skuluð vita, að þér verðið að iðrast, ella getið þér eigi frelsast.

4 Þér skuluð vita, að þér verðið að leggja niður stríðsvopn yðar, og megið ekki gleðjast framar af blóðsúthellingum og megið ekki grípa aftur til vopna, nema Guð bjóði svo.

5 Þér skuluð vita, að þér verðið að öðlast avitneskju um feður yðar og iðrast allra synda yðar og misgjörða og btrúa á Jesú Krist, að hann sé sonur Guðs og að Gyðingar drápu hann, en fyrir kraft föðurins reis hann aftur og hefur þannig csigrað gröfina. Og í honum hverfur einnig broddur dauðans.

6 Og hann gjörir aupprisu dauðra að veruleika. Þess vegna verða menn upp reistir til að standa frammi fyrir bdómstóli hans.

7 Og hann hefur gjört aendurlausn heimsins að veruleika, en með því mun hverjum þeim, sem reynist bán sektar frammi fyrir honum á degi dómsins, það gefið að cdveljast í návist Guðs í ríki hans og syngja þar föðurnum, syninum og hinum heilaga anda, sem eru deinn Guð, látlaust lof með ekórum himna í eilífri fsælu.

8 Iðrist þess vegna, látið skírast í nafni Jesú og takið á móti afagnaðarerindi Krists, sem lagt verður fyrir yður, ekki aðeins í þessum heimildum, heldur einnig í bheimildum þeim, sem Þjóðirnar fá cfrá Gyðingunum og sem berast munu frá Þjóðunum dtil yðar.

9 Því að sjá. aÞetta er ritað í þeim tilgangi, að þér megið btrúa því. Og ef þér trúið því, þá munuð þér einnig trúa þessu. Og ef þér trúið þessu, munuð þér fá vitneskju um feður yðar og einnig um hin undursamlegu verk, sem unnin voru meðal þeirra fyrir kraft Guðs.

10 Og þér munuð einnig vita, að þér eruð leifar af niðjum Jakobs. Þess vegna teljist þér meðal þjóðar fyrsta sáttmálans. Og fari svo, að þér trúið á Krist og látið skírast, fyrst með vatni og síðan með eldi og heilögum anda, og fylgið afordæmi frelsara vors samkvæmt því, sem hann hefur boðið oss, þá mun yður vel farnast á degi dómsins. Amen.