Ritningar
Mósía 14


14. Kapítuli

Jesaja talar um Messías — Sagt er frá auðmýkingu og þjáningum Messíasar — Hann gjörir sál sína að syndafórn og gjörist meðalgöngumaður hinna brotlegu — Samanber Jesaja 53. Um 148 f.Kr.

1 Já, segir ekki Jesaja: Hver trúði því, sem oss var boðað, og hverjum varð armleggur Drottins opinber?

2 Hann vex upp eins og viðarteinungur fyrir augliti hans og sem rótarkvistur úr þurri jörð. Hann er hvorki fagur né glæsilegur, svo að oss gefi á að líta, né álitlegur, svo að oss finnist til um hann.

3 Hann er fyrirlitinn og menn forðast hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, líkur manni, er menn byrgja fyrir andlit sín, fyrirlitinn, og vér mátum hann einskis.

4 En vorar aþjáningar voru það, sem hann bbar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði. Vér álitum honum refsað, hann sleginn af Guði og að honum þrengt.

5 En hann var særður vegna vorra abrota og kraminn vegna vorra misgjörða. Hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum, og fyrir hans benjar erum vér bheilbrigðir.

6 Vér fórum allir villir vegar sem asauðir, stefndum hver sína leið, en Drottinn lét misgjörðir vor allra koma niður á honum.

7 aHann var hrjáður og aðþrengdur, en lauk samt eigi upp munni sínum. Hann er færður sem blamb til slátrunar, og eins og sauður þegir fyrir þeim, er klippa hann, lauk hann eigi upp munni sínum.

8 Með þrengingu og dómi var hann burt numinn, og hverjir munu lýsa sig afkomendur hans? Því að hann var hrifinn burt úr landi lifenda. Fyrir sakir syndar lýðs míns var hann lostinn til dauða.

9 Og menn tóku honum gröf meðal illræðismanna, legstað með hinum aríku, því hann hafði eigi branglæti framið og svik voru ekki í munni hans.

10 En Drottni þóknaðist að kremja hann með harmkvælum. Þegar þú gjörir sál hans að syndafórn, skal hann fá að líta aafsprengi sitt og lifa langa ævi. Og áform Drottins skal fá framgang í hans höndum.

11 Hann mun sjá hörmungar sálar sinnar og vel við una. Með þekkingu sinni mun hinn réttláti þjónn minn réttlæta marga, því hann mun abera misgjörðir þeirra.

12 Þess vegna mun ég gefa honum mikinn hlut, og herfanginu mun hann deila með hinum öflugu. Því að hann hefur úthellt sálu sinni allt til dauða, og var talinn með illræðismönnum, hann bar syndir margra og annast ameðalgöngu fyrir hina brotlegu.