Ritningar
Kenning og sáttmálar 130


130. Kafli

Leiðbeiningaratriði, sem spámaðurinn Joseph Smith gaf í Ramus, Illinois, 2. apríl 1843.

1–3, Faðirinn og sonurinn geta birst mönnum í eigin persónu; 4–7, Englar búa á himneskum hnetti; 8–9, Hin himneska jörð mun verða mikilfenglegur Úrim og Túmmím; 10–11, Öllum sem koma inn í hið himneska ríki er gefinn hvítur steinn; 12–17, Spámaðurinn fær ekki að vita um tíma síðari komunnar; 18–19, Þeir vitsmunir, sem við öðlumst í þessu lífi, munu fylgja okkur í upprisunni; 20–21, Allar blessanir fást með hlýðni við lögmálin; 22–23, Faðirinn og sonurinn hafa líkama af holdi og beinum.

1 Þegar frelsarinn abirtist, munum við sjá hann eins og hann er. Við munum sjá, að hann er bmaður eins og við sjálf.

2 Og að sama félagslyndi og ríkir meðal okkar hér mun ríkja meðal okkar þar, en þar við bætist aeilíf dýrð, dýrð, sem við njótum ekki nú.

3 Jóhannes 14:23 — Opinberun aföðurins og bsonarins í þessu versi er persónuleg copinberun. Og sú hugmynd, að faðirinn og sonurinn ddvelji í hjarta mannsins, er gamall sértrúnaður og falskur.

4 Sem svar við spurningunni — Reiknast ekki atímatal Guðs, engla, spámanna og manna, eftir þeirri plánetu sem þeir búa á?

5 Ég svara, jú. En engir aenglar þjóna hér á þessari jörðu aðrir en þeir sem tilheyra henni eða hafa tilheyrt henni.

6 Englarnir búa ekki á plánetu eins og þessari jörð —

7 Þeir búa í návist Guðs, á hnetti sem líkist ahafi úr gleri og beldi, þar sem allt þeim til dýrðar er augljóst, bæði fortíð, nútíð og framtíð, og er stöðugt fyrir augliti Drottins.

8 Staðurinn, sem Guð býr á, er stór aÚrim og Túmmím.

9 Þessi ajörð, helguð og ódauðleg, mun verða lík krystalli og verður íbúum sínum Úrim og Túmmím, þar sem allt er tilheyrir lægra ríki eða öll óæðri ríki verða augljós þeim, sem á henni dvelja, og þessi jörð verður Krists.

10 Og hvíti steinninn, sem talað er um í Opinberunarbókinni 2:17, verður Úrim og Túmmím hverjum einstökum sem meðtekur hann, og með honum mun það sem tilheyrir æðri ríkjum kunnugt verða —

11 Og öllum, sem koma í hið himneska ríki, er gefinn ahvítur steinn og á hann er letrað nýtt bnafn, sem enginn maður þekkir nema sá sem meðtekur hann. Hið nýja nafn er lykilorðið.

12 Ég spái, í nafni Drottins Guðs, að upphaf þeirra aerfiðleika, sem valda munu miklum blóðsúthellingum fyrir komu mannssonarins, verði í bSuður-Karólínu.

13 Kveikja þeirra verður sennilega þrælamálið. Þetta sagði mér rödd meðan ég í heitri bæn spurðist fyrir um þetta efni þann 25. desember 1832.

14 Eitt sinn, er ég bað heitt um að fá að vita akomutíma mannssonarins, heyrði ég rödd endurtaka eftirfarandi orð:

15 Joseph, sonur minn, ef þú lifir það að verða áttatíu og fimm ára gamall, munt þú sjá ásjónu mannssonarins. Lát þetta því nægja og ónáða mig ekki framar varðandi þetta mál.

16 Þannig varð mér ómögulegt að ákveða, hvort með þessari komu væri átt við upphaf þúsund ára ríkisins eða einhverja birtingu fyrir þann tíma, eða hvort ég myndi deyja og þannig sjá ásjónu hans.

17 Ég trúi að koma mannssonarins verði ekki fyrir þann tíma.

18 Hvert það avitsmunastig, sem við öðlumst í þessu lífi, mun fylgja okkur í bupprisunni.

19 Og hljóti einhver, fyrir akostgæfni sína og bhlýðni, meiri cþekkingu og vitsmuni í þessu lífi en annar, mun hann standa sem því nemur dbetur að vígi í komandi heimi.

20 Það óafturkallanlega alögmál gildir á himni, ákvarðað báður en grundvöllur þessa heims var lagður, sem öll cblessun er bundin við —

21 Að þegar við öðlumst einhverja blessun frá Guði, þá er það fyrir hlýðni við það lögmál, sem sú blessun er bundin.

22 aFaðirinn hefur blíkama af holdi og beinum, jafn áþreifanlegan og mannslíkaminn er, sonurinn einnig, en cheilagur andi hefur ekki líkama af holdi og beinum, heldur er hann andavera. Væri ekki svo, gæti heilagur andi ekki dvalið í okkur.

23 Maðurinn getur meðtekið aheilagan anda, og hann getur komið yfir hann, án þess að vera áfram í honum.