131. Kafli
Leiðbeiningar spámannsins Josephs Smith, gefnar í Ramus, Illinois, 16. og 17. maí 1843.
1–4, Himneskt hjónaband er nauðsynlegt til upphafningar í hinum æðsta himni; 5–6, Hvernig menn eru innsiglaðir til eilífs lífs er útskýrt; 7–8, Allur andi er efni.
1 Í hinni ahimnesku dýrð eru þrír himnar eða stig —
2 Og til þess að ná því aæðsta, verður maðurinn að ganga inn í þessa prestdæmisreglu [það er, hinn bnýja og ævarandi hjónabandssáttmála]
3 Og gjöri hann það eigi, getur hann ekki náð því.
4 Hann getur gengið inn í hin, en lengra nær ríki hans ekki. Hann getur ekki abætt við sig.
5 (17. maí 1843). Hið áreiðanlegra aspámannsorð þýðir, að maðurinn veit með opinberun og spádómsanda, fyrir kraft hins heilaga prestdæmis, að hann er binnsiglaður til ceilífs lífs.
6 Ógerlegt er að maðurinn afrelsist í bvanþekkingu.
7 Ekkert er til án efnis. Allur aandi er efni, en hann er fíngerðari og tærari og aðeins hægt að greina hann með btærari augum —
8 Við getum ekki séð hann, en þegar líkamar okkar eru hreinsaðir munum við sjá, að hann er allur efni.