Ritningar
Kenning og sáttmálar 137


137. Kafli

Sýn, sem veittist spámanninum Joseph Smith í musterinu í Kirtland, Ohio, 21. janúar 1836. Tilefnið var framkvæmd helgiathafna í undirbúningi að vígslu musterisins.

1–6, Spámaðurinn sér Alvin bróður sinn í himneska ríkinu; 7–9, Kenningin um sáluhjálp fyrir dána opinberuð; 10, Öll börn hólpin í himneska ríkinu.

1 aHimnarnir lukust upp fyrir okkur og ég sá hið bhimneska ríki Guðs og dýrð þess, hvort heldur í clíkamanum eða ekki, get ég ekki sagt.

2 Ég sá hina yfirnáttúrlegu fegurð ahliðsins, sem erfingjar þess ríkis munu ganga um, og virtist sem dansandi beldslogar —

3 Einnig aljómandi hásæti Guðs, sem í sátu bfaðirinn og csonurinn.

4 Ég sá hin fögru stræti þess ríkis og virtist sem þau væru lögð agulli.

5 Ég sá föður aAdam og bAbraham, og cföður minn og dmóður og bróður minn eAlvin, sem sofið hefur lengi —

6 Og ég furðaði mig á hvernig á því stæði, að hann hefði hlotið aarf í þessu ríki, þar sem hann yfirgaf þetta líf, áður en Drottinn rétti út hönd sína til að safna saman Ísrael hið bannað sinn, og hafði ekki verið cskírður til fyrirgefningar syndanna.

7 Því barst arödd Drottins mér og sagði: Allir, sem dáið hafa bán þekkingar á fagnaðarerindinu, en hefðu meðtekið það, ef þeim hefði leyfst að dvelja lengur, verða cerfingjar hins dhimneska ríkis Guðs —

8 Einnig allir þeir, sem deyja héðan í frá án þekkingar á því en ahefðu meðtekið það af öllu hjarta, verða erfingjar þess ríkis —

9 Því að ég, Drottinn, mun adæma alla menn samkvæmt bverkum þeirra, samkvæmt því, sem hjörtu þeirra cþrá.

10 Og ég sá einnig, að öll börn, sem deyja áður en þau ná aábyrgðaraldri, eru bhólpin í himneska ríkinu.