Ritningar
Kenning og sáttmálar 3


3. Kafli

Opinberun veitt spámanninum Joseph Smith í Harmony, Pennsylvaníu, í júlí 1828, varðandi 116 bls. af handritum, sem glatast höfðu af þýðingu fyrsta hluta Mormónsbókar og nefndust Bók Lehís, en spámaðurinn hafði með tregðu látið þessi blöð úr vörslu sinni til Martins Harris, sem skamma hríð hafði verið ritari hans við þýðingu Mormónsbókar. Opinberunin veittist með Úrím og Túmmím. (Sjá kafla 10.)

1–4, Farvegur Drottins er eilíf hringrás; 5–15, Joseph Smith verður að iðrast eða glata þýðingargjöfinni; 16–20, Mormónsbók kemur fram, til að frelsa niðja Lehís.

1 Hvorki er unnt að ónýta averk Guðs, áætlanir hans eða tilgang, né gera þau að engu.

2 Því að aGuð gengur ekki bugðóttar brautir, né snýr hann til hægri handar eða vinstri, eigi víkur hann heldur frá því, sem hann hefur mælt. Þess vegna eru brautir hans beinar og bfarvegur hans ein eilíf hringrás.

3 Hafið hugfast, munið, að það er ekki averk Guðs sem ónýtist, heldur verk mannanna —

4 Því enda þótt maðurinn geti fengið margar opinberanir og haft kraft til að gjöra margvísleg máttarverk, hlýtur hann samt að falla og kalla yfir sig arefsingu réttvíss Guðs, ef hann bhreykir sér í eigin styrk, hefur að engu cráðleggingar Guðs og fylgir sinni eigin dholdlegu hyggju og þrá.

5 Sjá, þér var treyst fyrir þessum hlutum, en hversu ströng voru ekki fyrirmælin til þín! Og mundu einnig loforðin, sem þér voru gefin, ef þú brytir þau eigi.

6 Og sjá, hve oft þú hefur abrotið boðorð og lögmál Guðs og farið að bfortölum manna.

7 Því að sjá, þú áttir ekki að aóttast manninn meira en Guð. Enda þótt menn hafi að engu ráðleggingar Guðs og bfyrirlíti orð hans —

8 Ættir þú samt að hafa verið trúr. Og hann hefði rétt út hönd sína og varið þig gegn glóandi aörvum bandstæðingsins, og hann hefði verið með þér hverja cerfiða stund.

9 Sjá, þú ert Joseph, og þú varst valinn til að vinna verk Drottins, en vegna lögmálsbrots munt þú falla, sért þú eigi var um þig.

10 En haf hugfast, að Guð er miskunnsamur. Iðrast því þess sem þú hefur gjört og er andstætt fyrirmælum þeim sem ég gaf þér, og enn ert þú útvalinn og kallaður til verksins á ný —

11 Ef þú gjörir þetta ei, munt þú framseldur og verða sem aðrir menn og enga gjöf eiga lengur.

12 Og þegar þú lést af hendi það, sem Guð hafði gefið þér innsýn og kraft til að aþýða, lést þú í hendur rangláts bmanns það, sem heilagt var —

13 Manns, sem að engu hafði ráðleggingar Guðs og rofið hefur hin helgustu fyrirheit, sem gefin voru frammi fyrir Guði, og hefur treyst á eigin dómgreind og astært sig af eigin visku.

14 Og þetta er ástæðan fyrir því, að þú hefur glatað réttindum þínum um tíma —

15 Því að þú hefur leyft að ráð astjórnanda þíns væru fótumtroðin frá byrjun.

16 Engu að síður mun verk mitt halda áfram, því að rétt eins og heimurinn hefur fengið vitneskju um afrelsarann með bvitnisburði Gyðinganna, svo mun og fólk mitt fá cvitneskju um frelsarann —

17 Og aNefítar og Jakobítar og Jósefítar og Sóramítar, með vitnisburði feðra sinna —

18 Og aLamanítar og Lemúelítar og Ísmaelítar, sem bhnignað hafði í vantrú vegna misgjörða feðra sinna, og sem Drottinn leyfði að ctortíma bræðrum sínum, Nefítum, vegna misgjörða þeirra og viðurstyggðar, þeir munu fá vitneskju um þennan dvitnisburð.

19 Og einmitt í þeim atilgangi eru btöflur þær, sem geyma þessar heimildir, varðveittar — til að cfyrirheitin, sem Drottinn gaf fólki sínu, uppfyllist —

20 Og aLamanítar fái vitneskju um feður sína og viti um fyrirheit Drottins, og að þeir megi öðlast btrú á fagnaðarerindið og ctreysta á verðleika Jesú Krists, og ddýrðlegir verða fyrir trú á nafn hans og hólpnir verða fyrir iðrun sína. Amen.