Ritningar
Kenning og sáttmálar 67


67. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Hiram, Ohio, snemma í nóvember 1831. Tilefnið var sérstök ráðstefna, þar sem rædd var og ákvörðun tekin um birtingu opinberana, sem þá þegar hafði verið tekið á móti frá Drottni með spámanninum (sjá formála að kafla 1). William W. Phelps hafði nýverið stofnað prentsmiðju kirkjunnar í Independence, Missouri. Á ráðstefnunni var ákveðið að gefa opinberanirnar út í Boðorðabók og að prenta 10.000 eintök (sem var seinna minnkað niður í 3.000 eintök vegna ófyrirsjáanlegra erfiðleika). Margir bræðranna gáfu hátíðlegan vitnisburð um að opinberanirnar, sem safnað hafði verið saman til útgáfu, væru vissulega sannar, eins og heilagur andi, sem þeim veittist, hafði borið þeim vitni um. Saga Josephs Smith skýrir frá því, að eftir að opinberunin, sem þekkt er sem 1. kafli, hafði verið gefin, hafi nokkrar umræður orðið um málfar opinberananna. Þessi opinberun fylgdi.

1–3, Drottinn heyrir bænir öldunga sinna og vakir yfir þeim; 4–9, Hann skorar á þann vitrasta að eftirlíkja hina smæstu af opinberunum hans; 10–14, Staðfastir öldungar munu lífgaðir af andanum og sjá ásjónu Guðs.

1 Sjá og hlýðið á, ó, þér aöldungar kirkju minnar, sem safnast hafið saman, en bænir yðar hef ég heyrt og hjörtu yðar þekki ég, og þrár yðar hafa borist mér.

2 Sjá og tak eftir. aAugu mín hvíla á yður og himnar og jörð eru í mínum höndum og mitt er að útdeila auðæfum eilífðarinnar.

3 Þér vilduð trúa því, að þér hlytuð þá blessun, sem stóð yður til boða. En sjá, sannlega segi ég yður, aótti bjó í hjörtum yðar, og vissulega er það ástæðan fyrir því, að þér hlutuð hana ekki.

4 Og nú gef ég, Drottinn, yður avitnisburð um sannleik þeirra boðorða, sem fyrir yður liggja.

5 Augu yðar hafa hvílt á þjóni mínum Joseph Smith yngri, og amálfar hans hafið þér þekkt og ófullkomleika hans hafið þér þekkt. Og í hjörtum yðar hafið þér leitað þekkingar til að geta málfarslega staðið honum framar. Þetta vitið þér einnig.

6 Nú, leitið í Boðorðabókinni, jafnvel að því smæsta, sem þar er, og útnefnið þann, sem avitrastur er meðal yðar —

7 Og sé einhver meðal yðar, sem getur gjört eitt líkt því, þá eruð þér réttlættir í því að segja, að þér vitið ekki hvort þau eru sönn.

8 En getið þér ekki gjört eitt líkt því, eruð þér undir fordæmingu, ef þér aberið ekki vitni um, að þau eru sönn.

9 Því að þér vitið, að ekkert óréttlæti finnst í þeim, og það sem aréttlátt er kemur að ofan, frá föður bljósanna.

10 Og sannlega segi ég yður enn, að þetta eru forréttindi yðar, og loforð gef ég yður, sem vígðir hafa verið til þessarar helgu þjónustu, að sem þér varpið af yður aafbrýði og bótta og cauðmýkið yður fyrir mér, því að þér eruð ekki nægilega auðmjúkir, svo mun dhulan rifin frá og þér munuð esjá mig og vita að ég er — ekki með holdlegum né náttúrlegum huga, heldur andlegum.

11 Því að enginn amaður hefur nokkru sinni í holdinu séð Guð, nema hann sé lifandi gjörður með anda Guðs.

12 Né getur nokkur anáttúrlegur maður staðist návist Guðs, né neinn með holdlegan huga.

13 Þér eruð ekki færir um að standast návist Guðs nú, né heldur þjónustu engla. Haldið þess vegna áfram af aþolinmæði, þar til þér eruð bfullkomnaðir.

14 Snúið hugum yðar ekki til baka, og þegar þér eruð averðugir, munuð þér á mínum tíma sjá og vita það, sem veittist yður af hendi þjóns míns Josephs Smith yngri. Amen.