Ritningar
Kenning og sáttmálar 86


86. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Kirtland, Ohio, 6. desember 1832. Þessi opinberun var gefin meðan spámaðurinn las yfir og lagfærði handrit sitt að þýðingu á Biblíunni.

1–7, Drottinn skýrir dæmisöguna um hveitið og illgresið; 8–11, Hann útskýrir prestdæmisblessanir til þeirra, sem eru lögerfingjar í holdinu.

1 Sannlega, svo segir Drottinn við ykkur, þjóna mína, varðandi adæmisöguna um hveitið og illgresið:

2 Sjá, sannlega segi ég, akurinn var heimurinn og postularnir voru sáðmenn frækornsins —

3 Og þegar þeir voru sofnaðir, kom hinn mikli ofsóknari kirkjunnar, hinn fráfallni, hóran, sjálf aBabýlon, sem lætur allar þjóðir bergja af bikar sínum, og í hjarta hennar situr og ríkir óvinurinn, sjálfur Satan — sjá, hann sáir illgresinu og þess vegna kæfir illgresið hveitið og flæmir bkirkjuna út í eyðimörkina.

4 En sjá, á asíðustu dögum, já, nú þegar Drottinn er farinn að senda út orð sitt og sprotarnir spretta upp og eru enn viðkvæmir —

5 Sjá, sannlega segi ég yður: aEnglarnir hrópa á Drottin dag og nótt, og eru reiðubúnir og bíða eftir að verða sendir til að buppskera akrana —

6 En Drottinn segir við þá: Reytið ekki upp illgresið meðan sprotarnir eru enn viðkvæmir (því að vissulega er trú yðar veik), svo að þér tortímið ekki hveitinu einnig.

7 Lát þess vegna hveitið og illgresið vaxa saman þar til uppskeran er fullsprottin. Þá skuluð þér fyrst tína hveitið frá illgresinu. Og eftir að hveitinu hefur verið safnað, sjá og tak eftir, skal illgresið bundið í bindin og akurinn brenndur.

8 Svo segir Drottinn þess vegna við yður, sem aprestdæmið hefur haldist með gegnum ættlegg feðra yðar —

9 Því að þér eruð alögerfingjar í holdinu og hafið verið bhuldir heiminum með Kristi í Guði —

10 Þess vegna hefur líf yðar og prestdæmið varað og verður að haldast með yður og ætt yðar fram að aendurreisn allra hluta, sem talað hefur verið um fyrir munn allra hinna heilögu spámanna frá upphafi heimsins.

11 Blessaðir eruð þér þess vegna, ef þér haldið áfram í gæsku minni og verðið Þjóðunum aljós, og með prestdæminu frelsari þjóðar minnar, bÍsraels. Drottinn hefur sagt það. Amen.