Ritningar
Trúaratriðin 1


Trúaratriði
Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

1. Kapítuli

1 Vér atrúum á bGuð, hinn eilífa föður, og á cson hans, Jesú Krist, og á dheilagan anda.

2 Vér trúum, að mönnum verði refsað fyrir aeigin syndir, en ekki fyrir brot bAdams.

3 Vér trúum, að fyrir afriðþægingu Krists geti allir menn orðið bhólpnir með chlýðni við dlögmál og helgiathafnir efagnaðarerindisins.

4 Vér trúum, að frumreglur og ahelgiathafnir fagnaðarerindisins séu: Í fyrsta lagi btrú á Drottin Jesú Krist; í öðru lagi ciðrun; í þriðja lagi dskírn með niðurdýfingu til efyrirgefningar synda; í fjórða lagi fhandayfirlagning til veitingar á ggjöf heilags anda.

5 Vér trúum, að maður verði að vera akallaður af Guði með bspádómi og með chandayfirlagningu þeirra sem dvald hafa, til að eprédika fagnaðarerindið og framkvæma fhelgiathafnir þess.

6 Vér höfum trú á sama askipulagi og var í frumkirkjunni, þ.e. bpostulum, cspámönnum, dhirðum, fræðurum, eguðspjallamönnum og svo framvegis.

7 Vér höfum trú á agjöf til að tala btungum, gjöf cspádóma, dopinberana, esýna, flækninga, gtúlkunar tungna og svo framvegis.

8 Vér trúum, að aBiblíanborð Guðs, að svo miklu leyti sem hún er crétt þýdd. Vér trúum einnig, að dMormónsbók sé orð Guðs.

9 Vér trúum öllu, sem Guð hefur aopinberað, öllu, sem hann nú opinberar, og vér trúum að hann muni enn bopinbera margt stórfenglegt og mikilvægt varðandi Guðs ríki.

10 Vér höfum trú á hinni raunverulegu asamansöfnun Ísraels og endurreisn hinna btíu kynkvísla; að cSíon (Nýja Jerúsalem) verði reist á meginlandi Ameríku, að Kristur muni sjálfur dríkja hér á jörðu og að jörðin verði eendurnýjuð og hljóti fparadísardýrð sína.

11 Vér krefjumst þeirra aréttinda að fá að tilbiðja almáttugan Guð, eftir því sem eigin bsamviska cbýður, og viðurkennum sömu réttindi til handa öllum mönnum. Lofum þeim að dtilbiðja, hvernig, hvar eða hvað, sem þeim þóknast.

12 Vér höfum trú á að lúta konungum, forsetum, stjórnendum og yfirvöldum með því að hlýða alögunum, virða þau og styðja.

13 Vér trúum, að vér eigum að vera aheiðvirð, sönn, bskírlíf, góðgjörn, dyggðug og cgjöra öllum mönnum gott. Vér getum í sannleika sagt, að vér förum eftir dáminningu Páls: Vér trúum öllu, vér evonum allt, vér höfum staðist margt og vér vonumst til þess að geta fstaðist allt. Sé eitthvað gdyggðugt, fagurt, háleitt eða lofsvert, þá sækjumst vér eftir því.

Joseph Smith.