Tónlist
Kölluð til að þjóna


94

Kölluð til að þjóna

Með sannfæringu

1. Kölluð til að þjóna himins herra,

valin til að vitna´ um nafnið hans,

víðri veröld boðskapinn hans bera,

birta undur kærleikans.

[Chorus]

Áfram, alltaf áfram,

er vér lofum nafnið hans.

Áfram, alltaf áfram,

er vér lofum nafnið hans.

Áfram, sækjum áfram,

fram með sigursöngva hljóm.

Guð oss gefur styrk í þjónustu

við æðsta konungdóm.

2. Kölluð til að öðlast æðstu blessun

eins og konungs börnum hæfir best,

játa nafn hans glöðum, heilum huga,

honum lofgjörð flytja mest.

[Chorus]

Áfram, alltaf áfram,

er vér lofum nafnið hans.

Áfram, alltaf áfram,

er vér lofum nafnið hans.

Áfram, sækjum áfram,

fram með sigursöngva hljóm.

Guð oss gefur styrk í þjónustu

við æðsta konungdóm.

Sjá einnig Sálmar (1993), nr. 103

Texti: Grace Gordon, br.

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

Lag: Adam Geibel, 1855–1933

Kenning og sáttmálar 4:2–3

Kenning og sáttmálar 20:19