Tónlist
Börn um víða veröld


4

Börn um víða veröld

Þakksamlega

Við endalok alls í heimi hér

herrans börnin lifa við bæna mátt.

Hver og einn þakkar á sinn eigin hátt.

Segir þakkir, þakkir á sinn eigin hátt.

„Gracias.“ (gra-sí-as) „Malö.“ (ma-lö) „Wir danken dir.“ (vír dank-en dír)

Um víða veröld heyra má:

Stundum „tak,“ (takk) eða „merci,“ (mer-sí)

„Kansha shimasu,“ (Kan-sja sí-ma-sú) við þökkum þér.

Vor himneski faðir heyrir,

hann skilur sérhvert mál.

Vor faðir þekkir þau öll,

og elskar, elskar, elskar öll.

Þökk fyrir á erlendum málum:
Spænska: gracias
Tongamál: malo
Þýska: vir danken dir
Danska: tak
Franska: merci
Japanska: kansha shimasu

Texti: Peggy Hill Ryskamp, f. 1949. © 1975 IRI

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

Lag: Beth Groberg Stratton, f. 1944. © 1975 IRI

Kenning og sáttmálar 59:7