Tónlist
Ég þakka þér. faðir


9

Ég þakka þér. faðir

Látlaust

1. Ég þakka þér, faðir, á himninum hátt,

þinn hjálpandi, góðsama kærleikans mátt,

mér ástkæra foreldra’ og heimilið hér,

og hlýju, sem vinanna góðvildin ber.

2. Mér hjálpa’ að sem gott barn ég haldi minn veg,

og hlýðið við pabba og mömmu sé ég.

Í frelsarans nafni ég bón mína ber,

sem barnið þitt njóti ég verndar hjá þér.

Texti: Höf. ókunnur

Íslensk þýðing: MarÍus Ólafsson

Lag: George Careless, 1839–1932

Efesusbréfið 5:20

Alma 37:36–37