Tónlist
Himnafaðir elskar mig


16

Himnafaðir elskar mig

Með tjáningu

1. Í hvert sinn, sem heyri´ eg fugla söng

og horfi´ upp í heiðloftin blá,

og finn, þegar rignir framan í mig

og vindurinn feykist fram hjá,

í hvert sinn, sem finn ég fagra rós

og ilmvið, sem angan ber,

þá fagna ég mínum fagra heim,

sem Guð faðir minn skóp handa mér.

2. Hann augu mér gaf, svo mætti ég sjá

hinn margbreytta fiðrilda lit,

og heyrn mér hann gaf, svo heyra ég má

hugum fangandi tónanna glit.

Mér lífið hann gaf, minn hug og sál,

ég, herra Guð, lofa þig

fyr´ sköpunarverkið, sem víst heyri´ eg til,

og ég veit, að Guð minn elskar mig.

Lag og texti: Clara W. McMaster, 1904–1997. © 1961 IRI. Úts. © 1989 IRI

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

1. Mósebók 1