Tónlist
Kærustu nöfnin


106

Kærustu nöfnin

Ástúðlega

1. Ég þekki dásamlegt dýrðarnafn,

dáð mest um jarðar slóðir.

Hlusta! Nú hvísla ég því að þér,

og það er nafnið móðir.

Móðir, svo sönn og mild við mig,

ég elska þig, elska þig.

Móðir, svo sönn og ástúðleg,

ég elska þig.

2. Ég þekki dásamlegt dýrðarnafn,

dáð mest um aldaraðir.

Hlusta! Nú hvísla ég því að þér,

og það er nafnið faðir.

Faðir, svo ljúfur um lífsins stig,

ég elska þig, elska þig.

Faðir, svo ljúfur um lífsins stig,

ég elska þig.

Lag og texti: Frances K. Taylor, 1870–1952

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson