Tónlist
Hyggni maðurinn og heimski maðurinn


132

Hyggni maðurinn og heimski maðurinn

Hressilega

1. Sá hyggni byggði´ á bjargi húsið sitt,

sá hyggni byggði´ á bjargi húsið sitt,

sá hyggni byggði´ á bjargi húsið sitt,

svo kom regn og flaumurinn féll.

2. Og regnið féll og flóðið kom upp,

og regnið féll og flóðið kom upp,

og regnið féll og flóðið kom upp,

en húsið á bjarginu stóð.

3. Á sandi byggði sá heimski húsið sitt,

á sandi byggði sá heimski húsið sitt,

á sandi byggði sá heimski húsið sitt,

svo kom regn og flaumurinn féll.

4. Og regnið féll og flóðið kom upp,

og regnið féll og flóðið kom upp,

og regnið féll og flóðið kom upp,

og húsið á sandinum sökk.

Hreyfing:
Bjarg: Setja hægri hnefa þétt í lófa vinstri handar.
Regn: Rétta hendur hátt upp, láta þær falla og hreyfa fingur um leið.
Flóð: Lyfta höndum með lófana upp.
Sandur: Hreyfa fingur og arma fram og aftur.
Sökk: Hreyfa arma eins og öldur hvolfist yfir húsið.

Lag og texti: Suðrænt þjóðlag

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

Matteusarguðspjall 7:24–27

Helaman 5:12