Tónlist
Svo sem döggin silfurtæra


52

Svo sem döggin silfurtæra

Einlæglega

1. Svo sem döggin silfurtæra

seytlar yfir græna jörð,

þyrstum veitir vökvun kæra,

vitnar svo um þína gjörð.

2. Láttu þína kenning kæra

koma Drottinn, enn til vor

trúarvissu veikum færa,

verma’ af kærleik öll vor spor.

3. Vernda hina veiku’ og smáu,

veit að efnist heitin þín

lát frá skauti himins háu

hníga lífsins dögg til mín.

4. Til þín áköll okkar nái,

anda þinn svo finnum vér

að þinn lýður lof þér tjái,

lofi’ og tigni sem þér ber.

Texti: Parley P. Pratt, 1807–1857

Íslensk þýðing: Friðrik Guðni þórleifsson, 1891–1983

5. Mósebók 32:2

Jesaja 55:10–11