Tónlist
Vonin Síons


108

Vonin Síons

Rösklega

1. Vonin Síons, æskan unga

endurlausnar glæsti her,

sjáið merkið fyrir fara,

fólkorrusta í vændum er.

[Chorus]

Síons æska upp með þrótt,

áfram skal af krafti sótt,

látið gjalla heróp hátt,

Herrann veitir sigur brátt.

2. Lítið svartan synda grúa

safnast undir merkin ill,

vonin Síons bregður brandi,

berjast nú til sigurs vill.

[Chorus]

Síons æska upp með þrótt,

áfram skal af krafti sótt,

látið gjalla heróp hátt,

Herrann veitir sigur brátt.

3. Berjumst fyrir sannleik sælan,

synd og lygi falla skal,

leiftri brandur, lygi flýi,

losti’ og synd skal falla’ í val.

[Chorus]

Síons æska upp með þrótt,

áfram skal af krafti sótt,

látið gjalla heróp hátt,

Herrann veitir sigur brátt.

4. Senn við munum sigri fagna,

synd og dauði burtu máð,

vonin Síons, æskan unga,

yðar laun sé Drottins náð.

[Chorus]

Síons æska upp með þrótt,

áfram skal af krafti sótt,

látið gjalla heróp hátt,

Herrann veitir sigur brátt.

Texti: Joseph L. Townsend, 1849–1942

Lag: William Clayson, 1840–1887

Íslensk þýðing: Friðrik Guðni þórleifsson, 1944

Efesusbréfið 6:10–18

2 Nefí 28:7–8, 20–28