Tónlist
Gjörnýt þær gullnu stundir


88

Gjörnýt þær gullnu stundir

Rösklega

1. Gjörnýt þær gullnu stundir,

þær geysast hjá svo ótt.

Vinn meðan sólin sindrar,

senn mun koma nótt.

Oss lánast ei að ljósið

hér lengi sína töf

né skuggar frá oss fari

út fyrir hinstu nöf.

2. Sem leiftur tíminn líður

á ljósvængs hraða meið.

Hann kemur. Fram svo fer hann,

fer sína’ eigin leið.

Sé vitund eigi vökul

fer valkosturinn hreinn,

því lífið flughratt flýgur

sem færi dagur einn.

3. Sem fögru sumri fylgir

oft fimbulvetrartíð,

svo gæti frá oss gengið

gleði vor um síð.

Hve ættum vér þá eigi

í allri sigra þraut,

af æðstu hugsjón iðja

og illu víkja braut?

4. Gjörnýt þær gullnu stundir,

það gefur örugg ráð.

Sé staðið vel að verki,

veitist blessuð náð.

Lát göfgi störfum stjórna

haf stálfast hjartaþel,

þig æðstur Guð mun elska,

annast og hjálpa vel.

Lag og texti: Robert B. Baird, 1855–1916

Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923

Alma 34:32–33

Sálmarnir 119:60