Tónlist
Leggjum krafta til og tökum á


94

Leggjum krafta til og tökum á

Með tilþrifum

1. Vort mannkyn kallar vaska menn

er vinna’ af sterkri þrá.

Kom göfgu starfi leggjum lið!

Vinni hver sem vinna má!

[Chorus]

Leggjum krafta til og tökum á!

Sinnum verkunum með söng á brá!

Hver á sitt verk nú vinnum sterk

og með vaskleik tökum á!

2. Og kirkjan þarf nú hjálparhönd

lát hjörtu’ af kærleik slá.

Því vinnum henni heilagt verk,

vinni hver sem vinna má!

[Chorus]

Leggjum krafta til og tökum á!

Sinnum verkunum með söng á brá!

Hver á sitt verk nú vinnum sterk

og með vaskleik tökum á!

3. Þá sitjum ekki sinnulaus

er syndin herjar á

og leikur stríð sitt langa tíð,

vinni hver sem vinna má!

[Chorus]

Leggjum krafta til og tökum á!

Sinnum verkunum með söng á brá!

Hver á sitt verk nú vinnum sterk

og með vaskleik tökum á!

4. Með aðgát herja, elja, bið

af öllum kröftum þá.

Hrind verðleikanna verki fram,

vinni hver sem vinna má!

[Chorus]

Leggjum krafta til og tökum á!

Sinnum verkunum með söng á brá!

Hver á sitt verk nú vinnum sterk

og með vaskleik tökum á!

Lag og texti: Will L. Thompson, 1847–1909

Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923

Kenning og sáttmálar 58:26–28

Kenning og sáttmálar 107:99