Ritningar
3 Nefí 25


25. Kapítuli

Við síðari komuna munu hrokafullir og ranglátir brenna sem hálmleggir — Elía mun snúa aftur fyrir hinn mikla og ógurlega dag — Samanber Malakí 4. Um 34 e.Kr.

1 Því að sjá. Sá dagur kemur, sem mun glóa sem ofn. Og allir hrokafullir og allir þeir, er ranglæti fremja, munu þá vera sem hálmleggir, og dagurinn, sem upp rennur, mun brenna þá til agna, segir Drottinn hersveitanna, svo að hvorki verði eftir af þeim rót né kvistur.

2 En yfir yður, sem óttist nafn mitt, mun sonur réttlætisins rísa, með lækningarmátt undir vængjum sínum og þér munuð koma og vaxa upp eins og kálfar á bás.

3 Og þér munuð troða undir hina ranglátu, því að þeir munu verða aska undir iljum yðar á þeim degi, er ég hefst handa, segir Drottinn hersveitanna.

4 Munið eftir lögmáli Móse þjóns míns, en ég fól honum það á Hóreb, lögmál fyrir allan Ísrael með reglum og ákvæðum.

5 Sjá. Ég mun senda yður Elía spámann, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur —

6 Og hann mun snúa hjörtum feðranna til barnanna og hjörtum barnanna til feðra sinna, svo að ég komi ekki og ljósti jörðina banni.