Ritningar
Moróní 3


3. Kapítuli

Skýringar á því, hvernig öldungar vígja presta og kennara með handayfirlagningu. Um 401–21 e.Kr.

1 Háttur sá, er lærisveinarnir, sem nefndust öldungar kirkjunnar, höfðu á við vígslu presta og kennara —

2 Þegar þeir höfðu beðið til föðurins í nafni Krists, lögðu þeir hendur yfir þá og sögðu:

3 Í nafni Jesú Krists vígi ég þig til prests, (eða ef um kennara var að ræða vígi ég þig til kennara) til að boða iðrun og fyrirgefningu syndanna fyrir Jesú Krist og trúfestu á nafn hans allt til enda. Amen.

4 Og á þennan hátt vígðu þeir presta og kennara í samræmi við gjafir og köllun Guðs til mannanna. Og þeir vígðu þá með krafti heilags anda, sem í þeim bjó.