2014
Kynnast ömmu minni
júlí 2014


Æskufólk

Kynnast ömmu minni

Höfundur býr nú í Virginíu, Bandaríkjunum

Í einu verkefni mínu í Stúlknafélaginu bauðst ég til að hjálpa ömmu minni að finna áa hennar, með því að skruna í gegnum örfilmur í ættfræðisafninu í Mesa, Arisóna, Bandaríkjunum. Þegar við sátum saman og leituðum ættmenna okkar, fór ég að velta fyrir mér: „Hversu mikið veit ég í raun um ömmu sem situr mér við hlið?“

Við fundum fjölda ættmenna, skráðum upplýsingarnar og fórum í Mesa musterið í Arisóna til að framkvæma fyrir þau skírnir og staðfestingar. Nokkru síðar gaf amma mér innbundið safnverk ættarsögu sinnar.

Þar sem amma þjáist af liðagigt, reynist henni afar sársaukafullt að slá inn texta á lyklaborðið. Ég nýt þess að hjálpa henni við tölvuna. Í sameiningu ritum við atburði úr lífi hennar til andríkis og gagnsemi fyrir fjölskylduna. Ég hef unun af því að tengjast henni og læra heilmargt um sögu kirkjunnar, er við vinnum að þessu verkefni.