2023
Jesús vísaði okkur veginn
Ágúst 2023


„Jesús vísaði okkur veginn,“ Barnavinur, ágúst 2023, 4–5.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, ágúst 2023

Jesús vísaði okkur veginn

Ljósmynd
Alt text

Myndskreyting: Dan Burr

Jesús Kristur er sonur himnesks föður. Hann kom til jarðar til að sýna okkur hvernig við getum snúið aftur til himnesks föður einn daginn. Jesús lét skírast. Hann kenndi að við ættum að skírast líka.

Ljósmynd
alt text

Jesús sýndi okkur hvernig ætti að lifa. Hann elskaði og hjálpaði öllum. Hann vill að við fylgjum sér.

Ljósmynd
alt text

Jesús fann allan sársauka okkar og þjáðist fyrir syndir okkar. Síðan dó hann fyrir okkur. Þetta er kallað friðþæging Jesú Krists. Hann var reistur upp frá dauðum. Það þýðir að hann lifir í dag! Sökum Jesú, munum við einnig lifa aftur eftir að við deyjum.

Ljósmynd
alt text

Jesús gerði allt þetta fyrir okkur, því hann elskar okkur. Vegna hans, getum við einn daginn lifað með himneskum föður okkar og fjölskyldum okkar.

Ljósmynd
alt text

Við getum fylgt Jesú með því að láta skírast. Við getum líka fylgt honum á hverjum degi er við elskum og hjálpum öðrum og höldum boðorð hans.