Ritningar
Moróní 10


10. Kapítuli

Hægt er að eignast vitnisburð um Mormónsbók fyrir kraft heilags anda — Hinir trúföstu hljóta gjafir andans — Gjafir andans eru ætíð samfara trú — Orð Morónís koma úr duftinu — Komið til Krists, fullkomnist í honum, og helgið sálir yðar. Um 421 e.Kr.

1 Ég, Moróní, rita nú það, sem mér virðist gott, og ég beini orðum mínum til bræðra minna, Lamaníta. Ég vil, að þeir viti, að rúmlega fjögur hundruð og tuttugu ár eru liðin, síðan tákn var gefið um komu Krists.

2 Og þegar ég hef mælt nokkur hvatningarorð til yðar, innsigla ég þessar heimildir.

3 Sjá. Ég hvet yður, þegar þér lesið þetta — sé það viska Guðs, að þér lesið það — að þér hafið það hugfast, hve miskunnsamur Drottinn hefur verið mannanna börnum frá sköpun Adams og allt fram til þess tíma, er þér meðtakið þetta, og ígrundið það í hjörtum yðar.

4 Og þegar þér meðtakið þetta, þá hvet ég yður að spyrja Guð, hinn eilífa föður, í nafni Krists, hvort þetta er ekki sannleikur. Og ef þér spyrjið í hjartans einlægni, með einbeittum huga og í trú á Krist, mun hann opinbera yður sannleiksgildi þess fyrir kraft heilags anda.

5 Og fyrir kraft heilags anda getið þér fengið að vita sannleiksgildi allra hluta.

6 Og allt, sem er gott, er rétt og sannleikanum samkvæmt. Þess vegna afneitar ekkert gott Kristi, heldur viðurkennir, að hann er.

7 Og fyrir kraft heilags anda megið þér vita, að hann er. Þess vegna hvet ég yður til að afneita ekki krafti Guðs, því að máttarverk hans eru í samræmi við trú mannanna barna, hin sömu í dag og á morgun og að eilífu.

8 Og enn fremur hvet ég yður, bræður mínir, til að hafna ekki gjöfum Guðs, því að þær eru margar, og þær eru frá hinum sama Guði komnar. Gjafir þessar eru gefnar á margan hátt, en það er hinn sami Guð, sem er að verki í þeim öllum, og þær eru gefnar fyrir opinberun anda Guðs til mannanna þeim til heilla.

9 Því að sjá. Einum er gefið fyrir anda Guðs að kenna vísdómsorð —

10 Og öðrum að kenna orð þekkingar fyrir hinn sama anda —

11 Og öðrum mjög sterk trú, og öðrum gjöf lækninga fyrir sama anda —

12 Og enn öðrum að gjöra máttug kraftaverk —

13 Og enn öðrum er gefið að spá um alla hluti —

14 Og enn öðrum að sjá engla og þjónustuanda —

15 Og enn öðrum að tala margvíslegar tungur —

16 Og enn öðrum túlkun tungumála og margvíslegra tungna.

17 En allar þessar gjafir öðlast menn fyrir anda Krists, og hver og einn hlýtur þær að hans vilja.

18 Og ég hvet yður, mínir elskuðu bræður, að hafa það hugfast, sérhver góð gjöf kemur frá Kristi.

19 Og ég brýni fyrir yður, ástkæru bræður mínir, að hafa það hugfast, að hann er hinn sami í gær, í dag og að eilífu, og að svo lengi sem heimurinn stendur verða allar þær gjafir, sem ég hef minnst á og eru andlegs eðlis, aldrei burtu teknar, nema fyrir vantrú mannanna barna.

20 Þess vegna hlýtur að vera trú, og þar sem trú er, þar hlýtur einnig að vera von, og þar sem vonin vakir, þar hlýtur einnig að vera kærleiki.

21 Og eigið þér ekki kærleik, getið þér á engan hátt orðið hólpnir í Guðs ríki, né heldur getið þér orðið hólpnir í Guðs ríki, vanti yður trú, og eigi heldur, skorti yður von.

22 Og ef þér eigið enga von, hljótið þér að vera fullir örvæntingar, en örvæntingin stafar af misgjörðum.

23 Og Kristur sagði vissulega við feður vora: Ef þér trúið, getið þér gjört allt, sem mér er æskilegt.

24 Og nú beini ég máli mínu til allra hluta jarðarinnar — komi sá dagur, að kraftur Guðs og gjafir verði að engu gjört, þá gjörist það vegna vantrúar.

25 Og vei sé mannanna börnum, ef svo verður, því að enginn mun gjöra góðverk meðal yðar, ekki einn. En verði einn á meðal yðar, sem gott gjörir, þá gjörir hann það fyrir kraft og gjafir Guðs.

26 Og vei þeim, sem gjöra þetta að engu og deyja, því að þeir deyja í syndum sínum og geta ekki frelsast í Guðs ríki. Og ég segi þetta í samræmi við orð Krists, og orð mín eru sönn.

27 Og ég hvet yður að hafa þetta hugfast, því að sá dagur mun brátt koma, að þér fáið vissu um, að orð mín eru sönn, því að þér munuð sjá mig við dómgrindur Guðs, og Drottinn Guð mun segja við yður: Boðaði ég yður ekki orð mín, sem þessi maður hefur fært í letur, sem hróp hinna dauðu, já, eins og maður, sem hrópar úr duftinu?

28 Ég boða þetta til uppfyllingar spádómunum. Og sjá. Það skal fram ganga af munni hins ævarandi Guðs, og orð hans mun berast frá kynslóð til kynslóðar.

29 Og Guð mun sýna yður, að það, sem ég hef ritað, er sannleikur.

30 Og enn vil ég hvetja yður að koma til Krists og höndla hverja góða gjöf og snerta ekki hina illu gjöf, né það, sem óhreint er.

31 Og vakna og rís úr duftinu, ó Jerúsalem. Já, klæð þig skartklæðum þínum, ó Síonardóttir. Styrktu stikur þínar og færðu út kvíar þínar eilíflega, svo að þú verðir ei framar smáð og sáttmálarnir, sem hinn eilífi faðir hefur við þig gjört, ó Ísraelsætt, nái að uppfyllast.

32 Já, komið til Krists, fullkomnist í honum og hafnið öllu óguðlegu. Og ef þér hafnið öllu óguðlegu og elskið Guð af öllum mætti yðar, huga og styrk, þá bregst yður eigi náð hans, en fyrir náð hans náið þér fullkomnun í Kristi. Og ef þér, fyrir náð Guðs, eruð fullkomin í Kristi, getið þér alls eigi afneitað krafti Guðs.

33 Og enn fremur. Ef þér fyrir náð Guðs eruð fullkomin í Kristi og afneitið ekki krafti hans, eruð þér helguð í Kristi fyrir náð Guðs með úthellingu blóðs Krists, sem er í sáttmála föðurins til fyrirgefningar synda yðar, svo að þér verðið heilög og flekklaus.

34 Og nú segi ég við yður öll, lifið heil. Ég geng brátt til hvíldar í paradís Guðs, uns andi minn og líkami sameinast á ný og ég svíf um loftið í sigurgleði til móts við yður frammi fyrir hinum ljúfu dómgrindum hins mikla Jehóva, hins eilífa dómara bæði lifenda og látinna. Amen.

Endir