Ritningar
Kenning og sáttmálar 46


46. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith til kirkjunnar, í Kirtland, Ohio, 8. mars 1831. Á þessum fyrstu tímum kirkjunnar var engin föst regla komin á stjórn á guðsþjónustum hennar. Þó var orðinn siður í kirkjunni að veita aðeins meðlimum og einlægum trúarnemum aðgang að sakramentissamkomum og öðrum samkomum hennar. Þessi opinberun lýsir vilja Drottins varðandi skipulag og stjórn á samkomum og leiðsögn hans við að leita og greina gjafir andans.

1–2, Öldungar eiga að stjórna samkomum eins og heilagur andi segir fyrir um; 3–6, Leitendur sannleikans skulu ekki útilokaðir frá sakramentissamkomum; 7–12, Biðjið til Guðs og leitið gjafa andans; 13–26, Upptalning á sumum þeirra gjafa veitt; 27–33, Kirkjuleiðtogum gefst kraftur til að þekkja gjafir andans.

1 Hlýðið á, ó þér sem í kirkju minni eruð, því að sannlega segi ég yður, að þetta var til yðar talað, yður til gagns og lærdóms.

2 En þrátt fyrir það sem ritað er, hefur það ávallt verið veitt öldungum kirkju minnar frá upphafi og mun ætíð verða, að stjórna öllum samkomum eins og hinn heilagi andi leiðbeinir þeim og segir þeim fyrir um.

3 Eigi að síður er yður boðið að vísa engum frá almennum samkomum yðar, sem haldnar eru frammi fyrir heiminum.

4 Yður er einnig boðið að vísa engum, sem tilheyrir kirkjunni, frá sakramentissamkomum yðar. Hafi einhver samt sem áður brotið af sér, skuluð þér ekki leyfa honum að meðtaka það, fyrr en hann hefur gjört yfirbót.

5 Og enn segi ég yður: Þér skuluð engum vísa frá sakramentissamkomum yðar, sem einlæglega leitar ríkisins — ég segi þetta varðandi þá, sem ekki eru í kirkjunni.

6 Og enn fremur segi ég yður varðandi staðfestingarsamkomur yðar, að séu einhverjir utan kirkjunnar, sem einlæglega leita ríkisins, skuluð þér ekki vísa þeim frá.

7 En yður er boðið að spyrja Guð, sem gefur örlátlega, um alla hluti, og það, sem andinn ber yður vitni um, já, það vil ég að þér gjörið af fullum heilagleika hjartans og gangið grandvarir frammi fyrir mér, og íhugið lyktir sáluhjálpar yðar og gjörið allt með bæn og þakkargjörð, svo að illir andar véli yður ekki, eða kenningar djöfla eða boðorð manna, því að sum eru frá mönnum komin og önnur frá djöflum.

8 Verið þess vegna á verði, svo að þér látið eigi blekkjast, leitið af einlægni hinna bestu gjafa og hafið ávallt í huga til hvers þær eru gefnar, svo að þér verðið eigi blekktir —

9 Því að sannlega segi ég yður, að þær eru gefnar þeim til heilla, sem elska mig og halda öll boðorð mín, og þeim, sem leitast við að gjöra svo, svo að allir hafi gagn af, sem leita eða spyrja mig, sem biðja, en ekki um tákn til fullnægingar fýsn sinni.

10 Og enn, sannlega segi ég yður: Ég vil að þér minnist þess ávallt og hafið ætíð í huga hverjar þær gjafir eru, sem veitast kirkju minni.

11 Því að allir hljóta ekki sérhverja gjöf, því að gjafirnar eru margar og andi Guðs gefur hverjum manni gjöf.

12 Sumum er gefin ein og öðrum er gefin önnur, svo að allir njóti góðs af því.

13 Sumum er gefið fyrir heilagan anda að vita, að Jesús Kristur er sonur Guðs og að hann var krossfestur vegna synda heimsins.

14 Öðrum er gefið að trúa orðum þeirra, svo að þeir megi einnig eiga eilíft líf, séu þeir áfram staðfastir.

15 Og enn fremur veitir heilagur andi sumum að þekkja hina mismunandi stjórnunarhætti, eins og hinum sama Drottni er þóknanlegt, samkvæmt vilja Drottins, og að hæfi miskunnar hans, í samræmi við ástand mannanna barna.

16 Og enn fremur gefur heilagur andi sumum að þekkja hina ýmsu starfshætti, hvort þeir séu frá Guði, svo að opinberun andans veitist hverjum manni honum til gagns.

17 Og sannlega segi ég yður enn, að sumum gefur andi Guðs vísdómsorð.

18 Öðrum er gefið þekkingarorð, svo að öllum megi kenna visku og þekkingu —

19 Og enn, sumum er gefin trú til að læknast —

20 Og öðrum er gefin trú til að lækna.

21 Og enn fremur er sumum gefið að gjöra kraftaverk —

22 Og öðrum gefið að spá —

23 Og enn öðrum að greina anda.

24 Og enn fremur er sumum gefið að tala tungum —

25 Og enn öðrum gefin útlegging tungna.

26 Og allar þessar gjafir koma frá Guði, börnum Guðs til heilla.

27 Og biskupi kirkjunnar og þeim, sem Guð mun útnefna og vígja til að vaka yfir kirkjunni og vera öldungar hennar, skal veitast að greina allar þessar gjafir, svo að ekki verði einhver meðal yðar, sem segist vera af Guði, en er það ekki.

28 Og svo ber við, að sá, sem biður í andanum, skal af andanum meðtaka —

29 Svo að sumum sé gefið að hljóta allar þessar gjafir og geta orðið höfuð, svo að allir meðlimir megi njóta góðs af.

30 Sá, sem biður í andanum, biður í samræmi við vilja Guðs. Þess vegna verður honum að bón sinni.

31 Og enn segi ég yður, að allt, sem þér gjörið í andanum, verður að gjörast í nafni Krists —

32 Og þér verðið að veita Guði þakkir í andanum fyrir hverja þá blessun, sem þér eruð blessaðir með.

33 Og þér verðið stöðugt að ástunda dyggðir og heilagleika frammi fyrir mér. Já, vissulega. Amen.