Námshjálp
ÞJS, 1. Mósebók 15


ÞJS, 1. Mósebók 15:9–12. Samanber 1. Mósebók 15:1–6

Abraham lærir um upprisuna og sér þjónustu Jesú á jörðu í sýn.

9 Og Abram sagði: Drottinn Guð, hvernig ætlar þú að gefa mér þetta land til ævarandi arfleifðar?

10 Og Drottinn sagði: Væri ég ekki fær um að gefa þér það, þótt þú værir dauður?

11 Og þótt þú deyir munt þú samt eignast það, því að sá dagur kemur að Mannssonurinn mun lifa. En hvernig getur hann lifað án þess fyrst að deyja? Fyrst verður að lífga hann.

12 Og svo bar við að Abram leit og sá daga Mannssonarins og gladdist, og sál hans fann hvíld og hann trúði Drottni. Og Drottinn taldi það honum til réttlætis.