Námshjálp
ÞJS, Sálmarnir 11


ÞJS, Sálmarnir 11:1–5. Samanber Sálmarnir 11:1–5

Á hinum síðustu dögum munu hinir réttlátu flýja til fjalls Drottins. Þegar Drottinn kemur mun hann eyða hinum óguðlegu og endurleysa hina réttlátu.

1 Þann dag munt þú koma, Ó Drottinn, og ég mun leggja traust mitt á þig. Þú munt segja fólki þínu, því eyru mín hafa numið rödd þína; þú munt segja hverri sál: Flú þú til fjalls míns, og hinir réttlátu munu flýja sem fugl, sem leystur er úr snöru veiðimannsins.

2 Því að nú benda hinir óguðlegu bogann, leggja örvar sínar á streng, til þess að skjóta í myrkrinu á hina hjartahreinu til að rífa niður stoðir þeirra.

3 En stoðir hina ranglátu verða rifnar niður, hvað megna þeir að gjöra?

4 Því að þegar Drottinn kemur í sitt heilaga musteri, sitjandi á hásæti Guðs á himnum, þá munu augu hans nísta hina ranglátu.

5 Sjá, augu hans munu rannsaka mannanna börn, og hann mun endurleysa hina réttlátu og þau verða reynd. Drottinn ann hinum réttláta en hinn rangláta, þann er elskar ofríki, hatar hann.