Námshjálp
ÞJS, Sálmur 24


ÞJS, Sálmarnir 24:7–10. Samanber Sálmarnir 24:7–10

Konungur dýrðar mun endurleysa fólk sitt við komu hans.

7 Lyftið höfðum yðar, ó, þér kynslóðir Jakobs, hefjið yður upp, og Drottinn hinn styrki og máttugi, Drottinn bardagahetjan, sem er konungur dýrðarinnar, mun festa yður í sessi að eilífu.

8 Og hann mun svipta himnunum frá og koma niður til að endurleysa fólk sitt; til að gefa yður ævarandi nafn; til að festa yður á ævarandi bjargi sínu.

9 Lyftið höfðum yðar, ó, þér kynslóðir Jakobs; lyftið höfðum yðar, þér ævarandi kynslóðir, og Drottinn hersveitanna, konungur konunganna —

10 Sjálfur konungur dýrðarinnar mun koma til yðar, og endurleysa fólk sitt, og festa það í réttlæti. Sela.