2010
Að nálgast Drottin
janúar 2010


Fyrir börn

Að nálgast Drottin

Í Kirtland, Ohio meðtók spámaðurinn Joseph Smith opinberun. Drottinn sagði við hann: „Nálgist mig og ég mun nálgast yður. Leitið mín af kostgæfni og þér munuð finna mig.“ (K&S 88:63). Ein leið til þess að nálgast Drottin er að fylgja spámanni hans.

Teiknaðu mynd af því sem Thomas S. Monson forseti hefur beðið okkur að gera:

Biðjast fyrir.

Vera vinsamleg.

Leggja okkur fram við að læra.

Hjálpa öðrum.

Bera vitnisburð.

Lesa ritningarnar.