2011
Hvernig get ég fundið skjól frá því slæma í heiminum?
Apríl 2011


Sérstakt vitni

Hvernig get ég fundið skjól frá því slæma í heiminum?

Úr „How to Live Well amid Increasing Evil,“ Líahóna, maí 2004, 100–102.

Öldungur Richard G. Scott, í Tólfpostulasveitinni, miðlar hugsunum sínum um efnið.

Ljósmynd
Elder Richard G. Scott

Þó að lífið geti virst erfitt núna, haldið þá fast í járnstöng sannleikans. Þið takið meiri framförum en þið gerið ykkur grein fyrir.

Þið getið lifað dyggðugu, mikilvirku og réttlátu lífi með því að fylgja verndaráætluninni sem faðir okkar á himnum sá okkur fyrir: Sæluáætlun hans.

Þegar þið haldið áfram að snúa huga ykkar og hjarta til hans, mun hann hjálpa ykkur að njóta ríkulegs og uppfyllandi lífs, sama hvað á gengur í heiminum.

Himneskur faðir sá okkur fyrir ritningunum og hefur stöðugt veitt guðlegar leiðbeiningar til að styðja okkur. Sú aðstoð mun tryggja að þið getið lifað í friði og gleði mitt í stöðugt vaxandi ranglæti.

Leitið eftir og verið næm fyrir þeirri persónulegu leiðsögn sem heilagur andi veitir ykkur.

Teikning eftir Bryan Beach