2020
Blessun var það eina sem ég gat gefið
Apríl 2020


Blessun var það eina sem ég gat gefið

Jonathan Mafra Sena de Santana

Santa Catarina, Brasilíu

Ljósmynd
father giving daughter a blessing

Myndskreyting eftir Allen Garns

Ég lauk við lagaskóla á þeim tíma þegar dóttir mín átti eins árs afmælið sitt. Ég og eiginkona mín hlökkuðum til þess að halda upp á útskrift mína, afmæli dóttur minnar og möguleika framtíðar, en ekkert fór eins og við var búist.

Ég var atvinnulaus nokkru eftir útskriftina og átti erfitt með að finna atvinnu. Fjárhagserfiðleikar gerðu brátt vart við sig. Það hefði jafnvel reynst erfitt að hafa látlaust afmæli.

Eftir að hafa rætt heilmikið við eiginkonu mína, sættum við okkur við ástandið. Mér reyndist ekki auðvelt sem föður að geta jafnvel ekki keypt ódýra afmælisgjöf fyrir dóttur mína og að horfa upp á vonbrigði ástkærrar eiginkonu minnar.

Ég skildi ekki hvað var að gerast. Ég bað himneskan föður um að hjálpa mér að skilja hvers hann vænti af mér. Skyndilega var eins rödd talaði í huga minn og ég heyrði þessi orð: „Þú hefur nokkuð sem er dýrmætara öllu veraldlegu á þessari jörðu. Þú hefur prestdæmið. Hvaða betri gjöf getur þú gefið dóttur þinni en prestdæmisblessun?“

Augu mín fylltust tárum, er mér var hugsað um gildi prestdæmisins fyrir mig. Ég fylltist þakklæti í hjarta þegar ég íhugaði að prestdæmið væri krafturinn sem sameinaði fjölskyldu mína að eilífu.

Ég sagði eiginkonu minni frá þessum tilfinningum. Ég sagði henni að það eina sem ég gæti gefið dóttur minni væri blessun. Við komumst bæði að því að það myndi færa henni hamingju og frið, sem væri nægilegt.

Á afmælisdegi dóttur okkar komu vinir, ættmenni og nágrannar með köku og einfaldar skreytingar. Við vorum þakklát fyrir að halda upp á þennan sérstaka dag með þeim sem við elskum. Um kvöldið lagði ég hendur á höfuð dóttur minnar og gaf henni blessun. Ég blessaði hana með öllu því sem andi Drottins blés mér í brjóst að segja.

Við tökumst enn á við tímabil breytinga og áskorana varðandi atvinnuleysi og fjármál. Við hljótum þó frið og huggun mitt í sorg og vonbrigðum, frá frelsara okkar, Jesú Kristi. Ég veit fyrir víst að það er blessun að vera meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og hafa aðgang að krafti prestdæmisins. Þetta var það eina sem ég gat gefið dóttur minni á afmælisdegi hennar og það var meira en nóg.